Frétt sem Fréttablaðið birti haustið 2015, þess efnis að í Hlíðunum væri að finna íbúð sem væri sérútbúin til nauðgana, hefur dregið dilk á eftir sér og er ekki útséð um endalok málsins. Fréttin varð til þess að tveir menn, Elvar Már Atlason og Sveinn Rafn Eiríksson, voru nafngreindir á samfélagsmiðlum og þeir sakaðir um að hafa nauðgað stúlku. Tvímenningarnir flúðu land vegna fársins á samfélagsmiðlum en rannsókn í málinu var felld niður og þeir aldrei ákærðir.
Margir voru ákærðir fyrir meiðyrði vegna málsins og þar á meðal sjónvarpsstöðin Hringbraut, vegna fréttar á vef stöðvarinnar. Sú frétt var einungis endursögn á frétt Fréttablaðsins í málinu en engu að síður var Hringbraut fundin sek um meiðyrði og Sigmundur Ernir sjónvarpsstjóri dæmdur til að greiða samtals 500.000 krónur í miskabætur sem deildust jafnt milli tvímenninganna.
Sigmundur hefur nú áfrýjað dómnum og verður það mál tekið fyrir í Landsrétti á fimmtudaginn. Lögmaður tvímenninganna er Vilhjálmur Vilhálmsson. DV hafði samband við Sigmund vegna málsins sem sagði:
„Á þessum tíma var Björn Þorláksson blaðamaður hjá okkur og hann skrifaði fréttina en ábyrgðin féll á mig sem ritstjóra. En í fréttinni var bara verið að vitna í frétt Fréttablaðsins. Fyrir okkur blaða- og fréttamenn þá er þetta dálítið merkilegt að mínu viti, að maður sé orðinn samábyrgur ef maður vitnar í aðra. Ef þú myndir segja eitthvað ljótt um einhvern mann og ég myndi vitna í það og segja að það hafi birst í DV, að það sé þá hægt að dæma mig.“
Sigmundur taldi mikilvægt að láta reyna á þessa ábyrgð enn frekar og áfrýjaði því til Landsréttar. „Það eru allir fjölmiðlar að gera þetta meira og minna, vitna í það sem kom fram í Mogganum eða DV eða Hringbraut,“ segir hann og telur ískyggilegt að hægt sé að gera fjölmiðil þannig ábyrgan fyrir ummælum annarra fyrir það eitt að greina frá því að þau hafi verið látin falla.
Hann er hóflega bjartsýnn á niðurstöðu Landsréttar: „Ég tel þetta vera svona helmingslíkur en ekkert meira en það. Við sjáum hvað setur.“