Starfsmenn Eflingar hjá sveitarfélögum öðrum en Reykjavíkurborg og starfsmenn einkarekinna skóla samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta að fara í samúðarverkfall með starfsmönnum Eflingar hjá Reykjavíkurborg.
Kjörsókn hjá sjálfstætt starfandi skólum var 52% og samþykktu 90% verkfallsboðun. Kjörsókn hjá félagsmönnum hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfusi var 48% og samþykktu 87% verkfallsboðun.
Samkvæmt tilkynningu Eflingar sýna niðurstöðurnar með afgerandi hætti stuðning félagsmanna við verkfallsboðanir.
„Þessar niðurstöður sýna hve mikinn vilja fólk hefur til að leggja lóð sitt á vogarskálar í baráttunni fyrir bættum kjörum. Þetta eru hópar sem eru í sambærilegum störfum og félagsmenn okkar í verkfalli gagnvart Reykjavíkurborg. Sömu óbærilega illa launuðu störfin, við óboðlegt álag og aðstæður. Sveitarfélögin og stofnanirnar þar sem börnin okkar og aldraðir foreldrar dvelja eru stærstu láglaunavinnustaðir landsins. Tími breytinga er kominn, engin heiðarleg manneskja getur neitað því lengur,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Samúðarverkfall mun hefjast að óbreyttu þann 9. mars næst komandi. Samtök atvinnulífsins telja boðun samúðarverkfalls ólögmæta og eru að meta hvort höfðað verði mál fyrir félagsdómi.