Erik Heiðar Guðbergsson, 12 ára Íslendingur sem búsettur er á Bretlandi hefur vakið athygli fyrir hæfieika sína sem knattspyrnumaður þar í landi.
Erik er frá Akranesi en er búsettur í Sheffield og frammistaða hans með skólaliðinu þar í bæ vakti athygli stórvelda á Englandi.
Erik Heiðar hefur síðustu vikur og mánuði verið á reynslu hjá atvinnumannaklúbbum, þar má nefna Leeds Barnsley, Rotherham, Sheffield United og Sheffield Wednesday.
Eftir að hafa æft með öllum þessum liðum ákvað Erik og fjölskylda hans að ganga í raðir Sheffield Wednesday en fjölskyldan býr í borginni.
Erik lék með Sheffield Wednesday í gær þar sem hann var fyrirliði U13 ára liðs félagsins, hann skoraði eitt mark í leiknum.