Sérstakt Trans-teymi sem starfrækt var á BUGL hefur verið lagt niður, þrátt fyrir að fjöldi trans-barna sem leiti á BUGL hafi fimmfaldast á undanförnum árum. Ástæðan mun vera fjárskortur og skortur á mannafla.
Ráðgjafi hjá samtökunum 78 segir í fréttum stöðvar 2 í kvöld að vegna þessa séu það ráðgjafar sem hafi litla reynslu af málaflokknum sem taki á móti börnunum sem mörg hver snúi aftur úr þeim viðtölum kvíðnari en áður.
Með þessu sé einnig verið að fara á svig við lög um kynrænt sjálfræði þar sem komi skýrt fram að slíkt teymi eigi að vera starfrækt.
Ráðgjafi hjá samtökunum 78 segir að transbörn verði oft kvíðnari eftir viðtöl með ráðgjöfum því þau hafi ekki skilning á „Það skiptir gífurlega miklu máli að sá sem talar við transbörn þekki orðræðuna og viti hvernig á að nálgast þetta málefni því við erum síendurtekið að heyra af því hjá samtökunum að krakkarnir okkar eru að fara í einhver viðtöl í heilbrigðiskerfinu og koma út í rauninni kvíðnari.“
Trans börn glími við mikla vanlíðan, kvíða, þunglyndi og sjálfsvígshugsanir. Því sé þörfin á sérstöku teymi mikil og stjórnvöld verði að bregðast við.
„Það verður að vera til peningur. Það er rosalegur fjöldi af börnum sem þarf þessa þjónustu og hún er mjög mikilvæg,“ sagði ráðgjafinnn í fréttatíma Stöðvar 2.
Mannlíf fjallaði í gær um málið þar sem aðstandendur transbarna lýstu yfir miklum áhyggjum af stöðunni. 48 trans börn eru skráð hjá BUG, eða um tíundi hluti skjólstæðinga.
Transbörn sem séu að hefja kynþroska glími sérstaklega við mikla erfiðleika þar sem líkamar þeirra gangist undir breytingar sem þeir tengi ekki við.
„Það eru rosalega mörg börn að keppa við tímann vegna kynþroskans. Sumir foreldrar hafa þurft að vakta börnin sín vegna þunglyndis, átraskana eða sjálfsvígshættu,“ segir María Gunnarsdóttir, móðir tvítugrar trans konu í samtali við Mannlíf.