Strætisvagn rann út af veginum fyrr í kvöld. Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsingafulltrúi Strætó, sagði í samtali við fréttastofu RÚV að færðin sé erfið á heiðinni og að þar sé skafrenningur og hálka. Vagnin var á leiðinni til Reykjavíkur frá Akureyri en nokkrir farþegar voru í vagninum
Enginn af farþegunum slasaðist en Guðmundur segir að bílbelti séu í öllum vögnum sem ekið er á milli landshluta. Bílstjórinn og farþegarnir bíða nú eftir því að dráttarbíll komi til að draga vagninn aftur upp á veginn og mun vagninn þá halda ferð sinni áfram.