Stjórnvöld í Króatíu eru sögð vilja framselja Íslending til Rússlands sem var handtekinn í fyrra á landamærum Slóveníu og Króatíu. Maðurinn er sagður hafa dúsað í fangelsi í Króatíu síðan. RÚV greinir frá þessu.
Maðurinn er sagður af rússnesku bergi brotinn en þó íslenskur ríkisborgari. Hann mun hafa komið hingað sem flóttamaður og fengið vernd hér. Heimildir RÚV herma að maðurinn hafi verið á Balkanskaganum í fríi með fjölskyldu sinni þegar hann var handtekinn.
Hann var handtekinn á grundvelli alþjóðlegrar handtökuskipunar frá Interpol að beiðni rússneskra yfirvalda. Rússar saka hann um spillingu í starfi í heimalandi hans.
Dómsmál um framsal mannsins til Rússlands hefur verið á borði dómstóla í Króatíu, en í desember óskaði Hæstiréttur landsins eftir forúrskurði dómstóls Evrópusambandsins í málinu