fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Haukur: Reiðin beinist að röngu fólki – „Þeim síðarnefndu er mikil vorkunn“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 4. febrúar 2020 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Réttara væri að skammast í þeim sem semja lögin, frekar en þeim sem eiga að framfylgja þeim,“ segir lögfræðingurinn Haukur Örn Birgisson í bakþönkum Fréttablaðsins í dag.

Í pistli sínum skrifar Haukur óbeint um mál pakistanska drengsins Muhammed Faisal sem til stóð að senda úr landi. Greint var frá máli hans um helgina og er óhætt að segja að það hafi vakið mikil viðbrögð. Haukur bendir á að þegar mál sem þessi komast í umræðuna beinist reiði fólks að Útlendingastofnun og einstaka ráðherrum. Það finnst Hauki ósanngjarnt.

Reiðin beinist í ranga átt

„Lögfræðin á það til að vera rúðustrikuð. Mörgum gremst það en hjá því verður ekki komist. Réttarríkið krefst þess að lagatexti sé skýr, skiljanlegur, aðgengilegur og fyrirsjáanlegur, svo ekki þurfi að koma til umfangsmikilla túlkana. Lagatexti er hins vegar, eins og öll mannanna verk, sjaldnast fullkominn. Þegar svo ber undir er mikilvægt að sambærileg mál fái svipaða meðferð og samskonar niðurstöðu. Þótt hún sé ekki öllum að skapi, þá er samræmið mikilvægt,“ segir Haukur.

Haukur segir að umræðan um einstaklinga sem til stendur að vísa úr landi sé oft tilfinningaþrungin – eðlilega – en reiðin beinist stundum í ranga átt. Oftar en ekki fái ráðherrar og starfsmenn Útlendingastofnunar að heyra það.

Niðurstaðan má ekki ráðast af vinsældum

„Það er mjög ósanngjarnt, enda vill þetta fólk ekki, frekar en aðrir, vísa útlenskum barnafjölskyldum úr landi. Réttara væri að skammast í þeim sem semja lögin, frekar en þeim sem eiga að framfylgja þeim. Þeim síðarnefndu er mikil vorkunn. Niðurstöður dvalarleyfismála mega þó ekki ráðast af vinsældum útlendinganna, fjölda bekkjarsystkina þeirra, fjöldamótmælum eða aðgengi vina þeirra að fjölmiðlum. Slíkar niðurstöður samræmast ekki kröfum okkar um jafnræði, gagnsæi og fyrirsjáanleika,“ segir Haukur.

Hann tekur þó fram að ánægjulegt hafi verið að lesa niðurstöðu í máli piltsins sem fékk að vera áfram á Íslandi. Það sé gaman þegar lögfræðin getur verið manneskjuleg og rétt sé að fagna niðurstöðu ráðherra í málinu.

„En til að fyrirbyggja að álíka staða komi upp aftur þá er mikilvægt að skerpa á reglum, tryggja samfellda framkvæmd þeirra og málshraða – í því felst vandasamt starf sem krefst, umfram alls annars, yfirvegunar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu

OECD urðar yfir íslenska menntakerfið í nýrri skýrslu
Fréttir
Í gær

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“

Synjað um greiðsluþátttöku vegna sjúkdóms sem leggst á getnaðarliminn: Grét af kvölum – „Hreinlega efni í Kveik á RÚV“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum

Lögreglan sektar fyrir óheimila notkun á skyggðum filmum í bifreiðum