fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

Tómas á Banthai hreinsaður af ásökunum um þjófnað – Falsað skjal var notað gegn honum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 1. febrúar 2020 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn virti og vinsæli veitingamaður, Tómas Boonchang, oftast kenndur við Banthai á Hlemmi, maður sem hefur í yfir þrjá áratugi rekið veitingastaði hér á landi með framúrskarandi árangri, hefur nú verið hreinsaður af ásökunum um þjófnað. Nokkrum dögum eftir fyrri hluta aðalmeðferðar máls gegn honum dró ákæruvaldið ákæruna til baka eftir að í ljós kom að meginsönnunargagn sem málið byggðist á reyndist vera falsað.

Málavextir voru raktir í frétt DV þann 25. janúar síðastliðinn. Málið er óvenjulegt. Tómas var ákærður fyrir að hafa tekið ófrjálsri hendi hátt í hálfa milljón króna í reiðufé úr náttborðsskúffu konu einnar. Tómas ræddi við DV um málið og sagði að meintur brotaþoli væri kona sem hefði starfað hjá honum. Peningunum hefði hún stolið frá honum. Sagðist hann hafa lagt hald á peningana þar til hún gæti gert honum grein fyrir því með sannanlegum hætti hvernig hún hefði komist yfir þá.

Samkvæmt öruggum heimildum sem DV hafa borist var ákveðið að draga ákæruna til baka á þeim forsendum að meintur brotaþoli hefði logið um meginatriði málsins og ákæran byggðist á gögnum sem konan hefði lagt fram en reyndust vera fölsuð.

Málið virðist því þannig vaxið að ekki hafi eingöngu verið fallið frá ákæru um þjófnað, Tómas virðist vera hreinsaður af öllum grun um slíkt athæfi. DV hefur hermt að ákæran og umfjöllun um hana hafi valdið Tómasi mikilli vanlíðan enda er hann maður með óflekkað mannorð til þessa.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“

Arnar ómyrkur í máli: „Þetta fyrirkomulag er gargandi tímaskekkja“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Viðvörunarbjöllurnar hringja varðandi Rússland – „Þetta er óþægileg lesning“

Viðvörunarbjöllurnar hringja varðandi Rússland – „Þetta er óþægileg lesning“