Ekki kemur til greina að loka landinu vegna kórónaveirunnar. Slíkar ráðstafanir þyrftu að standa mánuðum saman og myndu valda víðtækum og alvarlegum afleiðingum fyrir íslenskt samfélag.
Þetta kom fram á fundi sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra í gær. Fjallað er um þetta í stöðuskýrslu almannavarnardeildar ríkislögreglustjórans vegna kórónaveirunnar sem send var fjölmiðlum á öðrum tímanum í dag. Var ráðherra sammála mati sóttvarnalæknis að þær ráðstafanir að loka landinu kæmu ekki til greina.
Búið er að staðfesta smit hjá 7.824 einstaklingum og um 170 einstaklingar hafa látist. Enginn einstaklingur hefur enn sem komið er greinst á Íslandi en sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að veiran muni berast hingað til lands. Því sé mikilvægt að grípa til ráðstafana til að hefta útbreiðslu hennar sem mest hér á landi. Engar aðgerðir munu hins vegar tryggja að veiran berist ekki hingað til lands.
Í skýrslunni kemur fram að á fundi sóttvarnalæknis og almannavarnadeildar ríkislögreglustjórans í morgun hafi verið rætt um viðbragð ef grunur um kórónaveiru kemur upp hér á landi eða einstaklingur greinist með veiruna. Áfram er unnið að upplýsingamiðlun og uppfærslu leiðbeininga til heilbrigðisstarfsfólks, almennings og ferðaþjónustunnar. Upplýsingar eru þýddar og vistaðar á vef embættis landlæknis á þessari slóð hér.