fbpx
Fimmtudagur 19.júní 2025
Fréttir

„Þetta kennir manni líka mikið, þessir tveir atburðir, hvað innræti fólks getur verið misjafnt“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 1. febrúar 2020 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur er með óbilandi ástríðu fyrir Vestfjörðum. Mynd: Ágúst G. Atlason / gusti.is

Mörgum kom á óvart í vikunni þegar greint var frá því að Guðmundur Gunnarsson væri hættur sem bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Ástæður starfslokanna voru sagðar ólíkar áherslur í verkefnum, en einnig hafa heyrst fréttir þess efnis að mikil spenna hafi ríkt milli Guðmundar og oddvita Sjálfstæðisflokks, Daníels Jakobssonar. Guðmundur segir þessa vendingu hafa verið óvænta, en að hann skilji þó sáttur við sín störf.

Ópólitískur bæjarstjóri

Guðmundur var ráðinn sem ópólitískur bæjarstjóri, samkvæmt kröfu Framsóknarflokksins sem er í meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn Ísafjarðar. Hann segir ákveðnar áskoranir ávallt fylgja slíkri ráðningu á hinum pólitíska vettvangi.

„Ég held að það sé alltaf svo, þegar það er ópólitískur bæjarstjóri, að það skapi ákveðnar áskoranir milli kjörinna fulltrúa og þeirra sem eru það ekki. En þegar lagt er í þetta samstarf í meirihlutanum þá eru ákveðnar línur lagðar og þá eiga allir að geta treyst því að menn séu í samstarfinu af heilindum og sannfærðir um að það muni og eigi að ganga. Þarna var lagt upp með ákveðin markmið og allir voru upplýstir um stöðuna. Það á ekki að hafa komið neinum á óvart að ég er ópólitískur enda var óskað eftir því og það var starfið sem var auglýst.“

Guðmundur segir starfslokin nokkuð óvænt, þó svo aðdragandi að þeim hafi verið nokkur.

„Ég held að ef þú hefðir spurt mig fyrir viku þá hefði ég ekki sé fyrir að þetta yrði niðurstaðan. Þetta þróaðist mjög hratt. Ég held að svona hlutir eigi sér alltaf einhvern aðdraganda. Ég held líka að þarna hafi eitthvað verið undirliggjandi, sem kannski hefði mátt liggja fyrr fyrir og ég held að alltaf þegar hlutir enda með þessum hætti þá sé eitthvað sem er ósagt, eitthvað sem er ekki upp á borðinu.“

„Ég hef ekki hugmynd“

Orðrómur hefur heyrst þess efnis að starfslok Guðmundar megi rekja til þess að oddviti Sjálfstæðisflokksins í Ísafirði, Daníel Jakobsson, hafi sjálfur augastað á bæjarstjórastöðunni. Aðspurður hvort hann sjái pólitískan bæjarstjóra taka við keflinu kveðst Guðmundur ekki hafa hugmynd um slíkt. „Ég segi það af einlægni að ég hef ekki hugmynd um hver þeirra næsti leikur verður, enda er það ekki í mínum höndum.“

Þrátt fyrir skyndileg starfslok skilur Guðmundur sáttur við sín störf.

„Þetta er skemmtilegasta starf sem ég hef verið í á ævinni. Ég naut þess í botn og þá sérstaklega samstarfsins við starfsfólk Ísafjarðarbæjar. Mér fannst gott að koma heim til Vestfjarða og hér líður mér rosalega vel. Ég fann strax að móttökurnar voru mjög góðar og hlýjar og ég náði strax mjög góðu samstarfi við bæði samstarfsfólk og bæjarbúa. Mér leið mjög vel í starfinu. Verkefnin voru skemmtileg og ótrúlega fjölbreytt. Það er sko ekki oft sem það fara saman verkefni í starfi og það sem maður hefur ástríðu fyrir. Ég hef óbilandi ástríðu fyrir Vestfjörðum og heimahögunum. Mér þykir vænt um svæðið og það er ekki á hverjum degi sem maður er í starfi sem kveikir hjá manni svona mikla ástríðu. Mér þykir vænt um Vestfirði og ber hag Vestfjarða sannarlega fyrir brjósti, ekki bara í starfi heldur í lífinu almennt. Starfið kveikti í mér eldmóð og ég lagði hjarta og sál í það og gerði það með glöðu geði. Ég fann að ég hafði eitthvað fram að færa í þessu starfi.“

Leiðtogahæfni í kjölfar snjóflóða

Guðmundur vakti nýlega athygli fyrir framgöngu sína í kjölfar snjóflóðanna sem féllu á Flateyri þann 14. janúar síðastliðinn. Þótti hann þar sýna mikla leiðtogahæfileika og fyrirmyndar framgöngu. Hefur nokkuð borið á því í umræðunni í tengslum við starfslok Guðmundar, að snjóflóðin hafi átt sinn þátt í starfslokum Guðmundar, en hann var til að mynda skipaður í starfshóp í síðustu viku sem á að vinna að tillögum um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri í kjölfar flóðanna. Hann hefur þó hafnað því áður í viðtölum að starfslokin megi rekja þangað, enda hafi mál á borð við þetta oftar en ekki aðdraganda sem einskorðist ekki við eitt mál.

Í kjölfar flóðanna hélt Guðmundur til Flateyrar þar sem hann meðal annars aðstoðaði fjölskyldu stúlkunnar sem grófst undir flóðinu og fyrir mikla mildi hafði ekki meint af.

„Það kannast allir við alla hérna og þegar þetta gerðist þá fór ég með varðskipinu yfir á Flateyri. Þá höfðum við heyrt af því að fjölskylda unglingsstúlkunnar, sem lenti undir snjóflóðinu, væri komin með henni á sjúkrahúsið á Ísafirði. Þegar ég var kominn til Flateyrar þá kom á daginn að það voru bara stúlkan og móðir hennar sem höfðu farið með varðskipinu yfir til Ísafjarðar á sjúkrahúsið. Yngri systkini stúlkunnar urðu eftir hjá vinafólki. Konan mín hafði farið upp á sjúkrahús að aðstoða stúlkuna og móðurina. Hana langaði svo að fá öll börnin til sín svo þau næðu að vera saman. Svo ég kom því í kring að tvö yngri börnin fóru með þyrlu Landhelgisgæslunnar yfir til Ísafjarðar og ég fór með þeim. Þetta setti ég í forgang. Mér fannst mikilvægt að fjölskyldan væri saman. Þá vildi svo til að faðir stúlkunnar var í þyrlu á leiðinni frá Reykjavík og faðir yngri barnanna var á Ísafirði og vildi börnin til sín. Ég fékk svo að verða vitni að því þegar öll fjölskyldan sameinaðist á sjúkrahúsinu.“

Kona Guðmundar hafði þá boðið fjölskyldunni athvarf á heimili þeirra. Stað sem væri þægilegra umhverfi en sjúkrahúsið.

„Innan við sólarhring eftir flóðin þá borðuðum við saman hér heima og áttum yndislega kvöldstund með fjölskyldunni. Borðuðum fiskibollur. Þau voru svo hjá okkur fram eftir degi daginn eftir og við tókum meðvitaða ákvörðun um að vera ekkert að láta vita af því, svo þau fengju skjól. Því við vissum að það yrði mikil eftirspurn frá ykkur fjölmiðlamönnum eftir að ná af þeim tali. Við náðum þarna nokkrum klukkutímum með þeim og það er eitthvað sem var alveg ótrúlegt og við munum sennilega aldrei gleyma.“

Starfslokin lítilfjörleg í samanburðinum

Í samanburði við þessa stund segir Guðmundur að eitthvað eins og að þurfa að leita að nýrri vinnu, verði ósköp lítilfjörlegt.

„Þegar maður er nýbúinn að hafa inni á heimili hjá sér fólk sem var í raun að heimta barn sitt úr helju, þar sem var mínútu- eða sekúnduspursmál um líf eða dauða, þá er maður náttúrlega í rauninni ekki í neinni stöðu til að vera að kvarta yfir einum einasta fjára. Þetta eru miklu stærri og merkilegri hlutir en einhver pólitískur ágreiningur eða afstaða um hvernig eigi að gera hlutina eða hver sé aðal eða hver sé auka. Þetta skiptir allt svo litlu máli í þessu stærra samhengi.“

Snjóflóðið er nokkuð sem Guðmundur mun aldrei gleyma. Samkennd, hugrekki og æðruleysi Flateyringa var mikilvæg kennslustund um mannlegt innræti.

„Það að hafa farið í gegnum þessa daga með Flateyringum og fólki sem ég ber ómælda virðingu fyrir, held ég að sé nokkuð sem á eftir að stækka mig út í lífið og eitthvað sem ég mun aldrei gleyma. Þetta kennir manni líka mikið, þessir tveir atburðir, hvað innræti fólks getur verið misjafnt.“

Nýjar áskoranir

En nú er bæjarstjóraævintýrinu lokið og þá skapast rými fyrir nýjar áskoranir. Blaðamaður hafði heyrt orðróm þess efnis að Guðmundur hygðist reyna fyrir sér í tónlistinni næst. Í samtali við Fréttablaðið greindi hann frá því að hann ætlaði sér að kaupa trommusett. En er hann búinn að því?

„Ótrúlegt hvað þessi saga fer víða. Nei, ég er ekki búinn að því. Ég er hins vegar að fara suður á föstudaginn og þá ætla ég að gera mér ferð og láta verða af þessu. Hugsa samt að ég hafi það rafmagnstrommusett, svona af virðingu við nágrannana þar sem ég kann ekki neitt á svona hljóðfæri. Þetta er eitthvað sem hefur alltaf blundað í mér. Ég er í karlakór, sem er reyndar í Reykjavík, en ég hef haldið góðu sambandi við, Karlakórinn Esja. Þeir komu og heimsóttu mig síðasta vor. Þeir komu fjörutíu eða fimmtíu skemmtilegir náungar hingað vestur, tóku hús á mér og við héldum gott partí. Þar komst ég að því að eiginlega allir í kórnum kunna á tromur, nema ég. Þetta sat svona pínu í mér. Ég hugsaði að ég þyrfti að gera eitthvað í þessu svo ég gæti nú í næsta partíi verið eins og allir hinir og spilað smá á trommur. Ég ætla að gera eitthvað í þessu núna, fyrst ég hef tímann. Ég er búinn að útbúa aðstöðu í bílskúrnum og vantar bara trommurnar. En ég hef þær rafmagns, til að afla mér ekki óvinsælda hjá nágrönnunum.“

En hvernig viðbrögð hefur þú fengið frá nærumhverfi þínu eftir að tilkynnt var um starfslok? 

„Ég hef fundið alveg rosalega mikla gæsku og hlýju og jákvæða strauma frá mörgum sem ég ber rosalega mikla virðingu fyrir. Það hringdi í mig áðan eldri maður sem ég hef kannast við alla mína ævi og við áttum rosalega gott samtal, sennilega samtal sem við hefðum aldrei átt nema vegna þessa. Mér er bara rosalega heitt í hjartanu.“

Hvað sem öðru líður skilur Guðmundur sáttur við starfið og þakklátur fyrir reynsluna.

„Já, veistu það, ég er bara rosalega glaður. Þetta var frábær tími. Alveg ótrúlega skemmtilegt, hef lært margt og tek margt jákvætt með mér út úr þessu. Mér mun alltaf þykja mjög vænt um þennan tíma.“

 

Lærir nú á trommur til að verða ekki útundan í næsta kórpartíi. Mynd: Ágúst G. Atlason / gusti.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu

Pípari kenndi skólpi um kókaínið í blóðinu
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Norðfjarðargöngum lokað vegna elds í bifreið

Norðfjarðargöngum lokað vegna elds í bifreið
Fréttir
Í gær

Rósa ósátt: Óboðleg hegðun mótmælenda í gær – „Eigum við bara að láta slíkt viðgangast?“

Rósa ósátt: Óboðleg hegðun mótmælenda í gær – „Eigum við bara að láta slíkt viðgangast?“
Fréttir
Í gær

„Við verðum að setja stopp á þennan hælisleitendaiðnað í bili, alla vega nokkur ár meðan við erum sem þjóðfélag að ná okkur, jafna okkur“

„Við verðum að setja stopp á þennan hælisleitendaiðnað í bili, alla vega nokkur ár meðan við erum sem þjóðfélag að ná okkur, jafna okkur“
Fréttir
Í gær

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks

Íranir sagðir hafa 48 tíma til að bjarga sér – Annars mæta Bandaríkin til leiks
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þessi 15 voru sæmd Fálkaorðunni í dag

Þessi 15 voru sæmd Fálkaorðunni í dag