fbpx
Sunnudagur 07.september 2025
Fréttir

Hannes kvartar undan ummælum Rögnu: „Af hverju eru hægrimenn svo fkn viðkvæmir?“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 26. janúar 2020 10:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hannes Hólmsteinn Gissurarson kveinkar sér á Facebook-síðu sinni yfir ummælum Rögnu nokkrar Birgisdóttur. Hannes birtir skjáskot af ummælum Rögnu, sem ku hafa sagt á Facebook: „Sjálfstæðisflokkurinn eru glæpasamtök“. Þessi ummæli virðast hafa sært Hannes því hann spyr: „Er þetta ekki hatursorðræða?“

Færsla Hannesar hefur vakið talsverða athygli en fjölmargar athugasemdir hafa verið skrifaðar við færsluna en hann er jafnframt hafður að háði og spotti á Twitter. Flestir benda á a’ gagnrýni á stjórnmálaflokka eða skoðun flokkist ekki undir hatursorðræðu. Nema þá að viðkomandi skilgreini flokkshollustu sem trúarbrögð. Einn Íslendingur á Twitter skrifar til að mynda: „Af hverju eru hægrimenn svo fkn viðkvæmir?“

Yfir árin hafa hægrimenn oft sakað vinstrimenn um viðkvæmni en svo virðist sem þetta sé að snúast við. Örn nokkur gerir það að umtalsefni í athugasemd við færslu Hannesar. „Það er sá munur á hægrimönnum og vinstrimönnum að hægrimenn fara ekki að grenja þó einhver skjóti á þá. Vinstrimenn hins vegar grenja, og grenja hátt. Fá svo áfallahjálp greidda af skattgreinendum, bætur greiddaraf skattgreiðendum og lögleiða bann við „hatursorðræðu“ svo þeir geti grenjað áfram,“ skrifar hann.

Það vekur jafnframt nokkra athygli að nokkuð margir segjast sammála Rögnu í athugasemdum hjá Hannesi þó vissulega eigi hann skoðanabræður. „Kjósendur sjálstæðisflokksins eru meðvirkir örvitar eða fávitar að koma þessu glæpamönnum til valda,“ skrifar til að mynda Magnús nokkur. Á hinn boginn má nefna Gísla nokkurn sem sárnar að vera tengdur við glæpi. „Er þetta kerlingahelvíti að segja að ég sé glæpamaður, verkamaðurinn borga? skatta af hverri krónu og allt það,“ segir hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umhverfis- og orkustofnun brást í umfangsmiklu stroki eldislaxa í Patreksfirði

Umhverfis- og orkustofnun brást í umfangsmiklu stroki eldislaxa í Patreksfirði
Fréttir
Í gær

Borgarfulltrúar sameinast í áhyggjum sínum af áformum Ingu

Borgarfulltrúar sameinast í áhyggjum sínum af áformum Ingu
Fréttir
Í gær

Einari brugðið þegar hann las tillögu Erlings – Segir þetta öfugt við það sem foreldrar þurfa

Einari brugðið þegar hann las tillögu Erlings – Segir þetta öfugt við það sem foreldrar þurfa
Fréttir
Í gær

Unga konan fundin heil á húfi

Unga konan fundin heil á húfi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varar við vopnakaupum Íslendinga fyrir Úkraínu – „Verðum við öruggari í kjölfarið?“

Varar við vopnakaupum Íslendinga fyrir Úkraínu – „Verðum við öruggari í kjölfarið?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Franska konan sem grunuð er um morð á hóteli í Reykjavík látin laus og úrskurðuð í farbann

Franska konan sem grunuð er um morð á hóteli í Reykjavík látin laus og úrskurðuð í farbann