Að minnsta kosti 12 af þeim 40 ferðamönnum sem lentu í hrakningum á Langjökli í ferð á vegum Mountaineers of Iceland ætla að leita réttar síns, samkvæmt frétt á RÚV. Allir ferðamennirnir eru nú farnir úr landinu. Mountaineers of Iceland segist hafa haft samband við nánast alla ferðamennina og endurgreitt þeim öllum ferðina.
Mountaineers of Iceland biður alla þá sem fara í vélsleðaferð á vegum fyrirtækisins að skrifa undir skjal fyrir ferðina. Á meðal þess sem þar kemur fram er að viðkomandi geri sér grein fyrir því að ferðin geti verið hættuleg og að fyrirtækið beri aðeins ábyrgð á slysum sem verði vegna galla í búnaði, eða vegna rangrar notkunar starfsmanna á þeim búnaði. Að sögn sérfræðinga sem RÚV bar þetta undir hefur skjalið nokkra lagalega þýðingu en firri fyrirtækið þó ekki ábyrgð.