Í hádeginu í dag var tilkynnt um rúðubrot í atvinnuhúsnæði í hverfi 108. Líklegt er talið að skotið hafi verið á rúðuna með loftriffli. Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar.
Þetta kemur fram í dagbók Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir einnig frá því að um hálfþrjúleytið í dag óskaði eigandi bíls eftir aðstoð lögreglu vegna ölvaðs manns sem olli skemmdum á bíl hans með því að berja í vélarhlífinni. Upplýsingataka fór fram á vettvangi og málið verður kært formlega síðar.
Klukkan hálftvö óskaði starfsfólk verslunar í Hafnarfirði eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem væri að reyna að greiða fyrir vörur með fölsuðum peningaseðli. Peningaseðillinn var haldlagður en við skýrslutöku á vettvangi neitaði sakborningur öllum sakargiftum.
Á fjórða tímanum í dag slasaðist 10 ára stúlka í Garðabæ við fimleikaæfingar á trampólíni. Brotnaði hún á báðum handleggjum og var flutt á slysadeild með sjúkrabíl.
Klukkan hálftvö í dag tilkynnti leikskólastjóri í Breiðholti um hugsanlega sprengju með kveikiþræði á leikskólalóð. Um var að ræða pappahólk (líklega innan úr skottertu eða flugeld) sem búið var að líma saman með límbandi. Sérsveit lögreglu fjarlægði hlutinn og sá um að eyða honum. Ekki er vitað hver kom þessu fyrir á lóðinni.