fbpx
Sunnudagur 23.nóvember 2025
Fréttir

Landsnet virkjar viðbragsáætlun vegna óveðurs

Ritstjórn DV
Mánudaginn 6. janúar 2020 11:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landsnet hefur undirbúið viðbrögð vegna lægðarinnar sem kemur yfir landið á morgun og verður viðvarandi fram á fimmtudag.

„Spáð er djúpri lægð sem kemur yfir landið á morgun og verður viðvarandi fram á fimmtudag. Með lægðinni sem stefnir á Reykjanes á morgun, þriðjudag, eykst veðuráraun á raforkukerfið. Eldingahætta verður með meginskilum lægðarinnar í fyrramálið einkum suðvestan- og sunnanlands. Með vestanáttinni í kjölfarið er reiknað með umtalsverðu álagi um sunnan og vestanvert landið af völdum vinds, ísingar og seltu sem verður viðvarandi fram á fimmtudag,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að þegar sé búið að kortleggja hvaða landsvæði eru útsett fyrir seltu. Nú þegar er unnið að undirbúningi hreinsunar í samstarfi við slökkvilið á svæðunum sem um ræðir. Landsnet hvetur landsmenn til að fylgjast með tilkynningum á heimasíðu Landsnets, Facebook og í Landsnetsappinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rajan tekur upp hanskann fyrir Snorra og segir Íslendinga í útrýmingarhættu – „Hinn afburðaefnilegi íslenski stjórnmálamaður“

Rajan tekur upp hanskann fyrir Snorra og segir Íslendinga í útrýmingarhættu – „Hinn afburðaefnilegi íslenski stjórnmálamaður“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Morðtúrismi í Sarajevo: Nafn forseta Serbíu nefnt í nýjum ásökunum

Morðtúrismi í Sarajevo: Nafn forseta Serbíu nefnt í nýjum ásökunum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Meintur ofbeldismaður þarf áfram að sæta nálgunarbanni gegn fyrrum eiginkonu og dætrum þeirra

Meintur ofbeldismaður þarf áfram að sæta nálgunarbanni gegn fyrrum eiginkonu og dætrum þeirra
Fréttir
Fyrir 3 dögum

SAFÍR20 ný fjármögnunarleið fyrir íbúðir á Orkureitnum

SAFÍR20 ný fjármögnunarleið fyrir íbúðir á Orkureitnum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hefur áhyggjur af skólaskyldunni og krefur menntamálaráðherra um svör

Hefur áhyggjur af skólaskyldunni og krefur menntamálaráðherra um svör