fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Íslenskur maður spurði hvort það væri í lagi að stunda samfarir með 16 ára stelpu í Tælandi: „Ef þú ert nógu gamall til að vera afi hennar, láttu hana í fokking friði“

Máni Snær Þorláksson
Sunnudaginn 5. janúar 2020 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í hópnum Thailandsvinir á Facebook kennir ýmissa grasa. Þar deila Íslendingar, sem ferðast mikið til Tælands eða búa þar, fréttum og sögum frá Tælandi. Undanfarið hefur þó spenna í hópnum aukist vegna færslu sem birtist þar í vikunni.

„Thailandsvinir er gerð fyrir Íslendinga sem eru annað hvort fastagestir í Thailandi eða vildu vera það,“ segir í lýsingu á hópnum. „Það var ákveðið í byrjun að hafa einungis herramenn hér innanborðs og við reynum að vera kurteisir hvor við annan.“

Eins og áður segir þá hefur spennan aukist innan hópsins. Það sem olli þessari spennu var spurning sem maður nokkur í hópnum spurði aðra meðlimi hópsins. „16 eða 18? Hvað er aldurinn í Tælandi sem má löglega hafa samfarir? Vantar svar fljótt,“ spurði maðurinn. Þessi spurning mannsins vakti ekki bara reiði innan hópsins heldur einnig utan hans en skjáskoti af færslunni hefur verið deilt víða í netheimum.

„Láttu hana í fokking friði“

Ein þeirra sem gagnrýnt hafa spurninguna er samfélagsmiðlaaktívistinn Sólborg Guðbrandsdóttir en hún sér um Instagram síðuna Fávitar. Instagram síðan er átak hennar gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi og hefur síðan í dag yfir 26 þúsund fylgjendur sem standa saman í því að segja frá ofbeldi, styðja hvert annað og vinna gegn kynferðisofbeldi.

„Þið herramenn í Thailandsvinum (af því að konur hafa auðvitað ekkert gaman að ferðalögum), væruð þið til í að vera svo vænir að benda 60+ ára mönnum innanborðs að ef um er að ræða 16 eða 18 ára stelpu skipta tvö ár til eða frá ekki nokkru máli,“ segir Sólborg í færslu á Instagram síðunni Fávitar. „Ef þú ert nógu gamall til að vera afi hennar, láttu hana í fokking friði.“

Gústaf gaf rauða spjaldið

„Það þarf ekki mikið til að rugga bátnum,“ segir Gústaf Valber, stjórnandi Facebook-síðunnar Thailandsvinir í færslu sem hann deildi í hópinn í gær. „Einn félagi okkar var með óviðeigandi spurningar hér og ég áminnti hann. Gaf honum 1 séns, en hans ummæli hafa dregið dilk á eftir sér og ég hef ákveðið að gefa honum rautt spjald, hann á ekkert heima hér.“

Gústaf segir hópinn aðallega vera hér til að veita upplýsingar og gefa ráð. „Við getum bjargað lífi, fundið týnt fólk og margt annað. Fyrst og fremt erum við að skemmta okkur og öðrum og erum með fréttaflutning frá Thailandi,“ segir Gústaf. „En eftir að þetta fór í loftið hefur okkur fjölgað um 50-100 manns á dag, svo að slæmur fréttaflutningur er betri en enginn. Við gömlu félagarnir erum bara að eyða hér okkar fríum eða búum hér, ekkert í neinu rugli, bara með okkar konum hér.“

Upprunalegu meðlimirnir komnir með nýja síðu

Hann segir að það sé alltaf einhver svartur sauður til staðar. „Vonandi verður þetta ekki til að ég þurfi að loka síðunni en það hefur komið til álita. Þetta er mjög góð leið fyrir nýkomna af fá upplýsingar og einnig leita aðstoðar ef með þarf,“ segir Gústaf og bætir við að hann hefur stofnað aðra síðu með upprunalegu meðlimunum. „Við þessir gömlu erum með aðra síðu og hún er bara fyrir okkur gömlu félagana.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta

Brúður skotin til bana í blóðugri skotárás í Suður-Frakklandi – Árásarmenn á flótta
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Í gær

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi