fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

„Þetta lið er að taka í nefið á sér“ segir Stefan um íslenskt stjórnmálafólk – „Þangað kom margt stjórn­mála­fólk og banka­fólk“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 4. janúar 2020 12:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefan Octavian hefur oft verið þekktur sem fyrsta íslenska klámstjarnan. Í viðtali við mbl.is sem birtist í dag sviptir Stefan hulunni af fíkniefnaneyslu háttsetts fólks á Íslandi en hann staðhæfir að fólk á Alþingi sé ekkert betra en fólk í klámheiminum.

Það vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum þegar Stefan, sem er aðeins 21 árs gamall, steig fram opinberlega sem fyrsta klámstjarna Íslands. Kemur hann fram undir sviðsnafninu Charlie Keller en upphaflega var ætlun hans að halda starfinu leyndu, að minnsta kosti fyrst um sinn. Fiskisagan flýgur hins vegar hratt hér á Íslandi og þegar Stefan komst á snoðir um að íslenskur fjölmiðill ætlaði að fjalla um starfsvettvang hans sá hann sig knúinn til þess að láta ástvini sína vita og opna umræðuna.

Nú er Stefan hins vegar hættur í kláminu. Hann vinnur nú í fylgdarþjónustu en hann ræddi við mbl.is um starfið. „Það er hátt­set fólk hjá banda­ríska rík­inu sem kaup­ir þjón­ustu af mér. Þú get­ur farið út að borða, þú get­ur farið í ferðalag með ein­hverj­um. Þetta er rosa oft einmana fólk sem á allt of mikið af pen­ing­um. Stundum hitti ég gifta ein­stak­linga sem eru í felu­leik en kom­ast ekki út úr skápn­um vegna ótta,“ sagði Stef­an.

„Þetta lið er að taka í nefið á sér“

Í viðtalinu segir Stefan frá sinni heitustu ástríðu um þessar mundir en það  er heimildarmynd um fíkniefnaneyslu sem hann er að vinna að. Með myndinni vill Stefan sína að fíkniefnaneysla sé ekki bara tengd klámiðnaðinum heldur sé að finna hana í öðrum kimum samfélagsins, meðal annars á Alþingi.

„Ég var að vinna á veit­ingastað niðri í bæ fyr­ir nokkr­um árum og þangað kom margt stjórn­mála­fólk og banka­fólk í mat. Þetta lið er að taka í nefið á sér. Ég er ekki að segja að all­ir geri þetta,“ segir Stefan í viðtalinu en hann staðhæfir að fólk á Alþingi séu ekkert betri borgarar en fólk í klámheiminum.

Stefan kynntist manni sem varð kveikjan að þessari heimildarmynd. „Það var 72 ára maður sem sat fyr­ir fram­an mig og sagði mér að hann hefði byrjað í neyslu fyr­ir sex árum. Í fyrsta skipti sem hann notaði sprautaði hann sig. Hann á konu, börn og barna­börn en hann er hommi. Hann er hátt­sett­ur fjár­fest­ir í Nevada-ríki. Ég fylgd­ist með hon­um lengi. Ég get ekki dæmt fólk, ég hef verið um­deild­ur, af hverju ætti ég að fara dæma ein­hverja aðra? Ég hef ekki efni á að dæma fólk. Ég lærði það eft­ir sam­bands­slit­in hjá mér að mér er sama hvað annað fólk er að gera svo lengi sem það er ekki að skaða hvert annað.“

Stefan segist vera búinn að rannsaka lífið hjá þeim sem eru í neyslu en næsta skrefið í gerð heimildarmyndarinnar er að tala við sérfræðinga og aðstandendur fíkla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi

Dómur fallinn yfir Sigurði Fannari – Varð dóttur sinni að bana á Krýsuvíkurvegi
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“

Jón Viðar botnar ekkert í Ingu Sæland: „Hef ég misskilið eitthvað, Inga?!“
Fréttir
Í gær

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði

Bilun veldur truflunum á farsíma- og netþjónustu á Neskaupstað og Eskifirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“

Segir að Kristrún Frostadóttir hafi gengið í gildru andstæðinga sinna á Ísafirði – „Líklega er þetta sú setning sem Kristrún mátti síst segja“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét varð fyrir óhugnanlegri reynslu eftir viðburð sem hún sótti – „Þetta er stórhættulegt“

Margrét varð fyrir óhugnanlegri reynslu eftir viðburð sem hún sótti – „Þetta er stórhættulegt“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu

Brottrekinn flugmaður fær engar bætur: Ítrekuð hegðunarvandamál og drykkja – Reyndi að bjarga sér með umdeildri ADHD-greiningu