150 björgunarsveitarmenn leituðu í dag Andris Kalvans, 57 ára gamals Litháa sem búsettur er í Reykjavík en hefur verið saknað í Heydal á Snæfellsnesi síðan skömmu fyrir áramót. Bíll Andris fannst á Heydal og var talið að hann hefði gengið upp á Hrútatind en hann er þekktur fyrir áhuga á fjallgöngum. Hins vegar hafa ekki fundist neinar órækar vísbendingar um að Andris hafi farið í göngu. Mjög lítið er vitað um ferðir mannsins.
Leitin í dag var árangurslaus en RÚV greinir frá því. Leitin í dag hófst í birtingu og henni lauk síðdegis, fyrir klukkan fimm. Leitað var með gönguhópum, sexhjólum og fjórhjólum. Leitað var fyrir ofan veginn þar sem bíll Andris fannst.
Ekki er útlit fyrir leit á morgun þar sem veður mun þá versna mikið á svæðinu.