Talsverðar annir hafa verið hjá lögreglunni á Suðurnesjum á undanförnum dögum vegna umferðareftirlits. Bifreið sem ekið var afar hægt eftir Hringbraut og stigið ótt og títt á bremsuna vakti til dæmis athygli lögreglumanna.
Í skeyti frá lögreglu segir að þegar ökumaðurinn nam svo staðar á miðjum vegi hafi verið ákveðið að kanna með ástand hans. „Hann reyndist í fullkomnu lagi og voru þarna á ferð erlendir ferðamenn sem voru að leita að norðurljósum.“
Þá segir lögregla að nokkrir ökumenn hafi verið stöðvaðir vegna gruns um vímuefnaneyslu. Einn þeirra hafði áður verið sviptur ökuréttindum.
Nokkrir voru svo kærðir fyrir hraðakstur. Sá sem hraðast ók mældist á 125 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.