fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Upplifun íslenskra karlmanna af föðurhlutverkinu : „Ég myndi ekki skipta neinu út fyrir föðurlaust líf“

Auður Ösp
Laugardaginn 4. janúar 2020 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það er ekkert sem að undirbýr þig undir þetta hlutverk og þessa tilfinningu. Dóttir mín sagði: „Ég elska pabba“, hún er tveggja ára, hún er rétt farin að tala. Það er ekkert sem að undirbýr þig undir þegar barnið þitt segir þetta eða heldur í höndina á þér eða kemur og knúsar þig. Það er alveg stjarnfræðilega bjánalegt að reyna að lýsa því eitthvað,“ segir íslenskur karlmaður um upplifun sína af föðurhlutverkinu.

Þetta kemur fram í rannsókn Pálu Margrétar Gunnarsdóttur en í tengslum við MA-verkefni sitt við menntavísindasvið HÍ kannaði hún upplifun íslenskra feðra af auknum þroska, hamingju og lífstilgangi.

„Súrrealísk tilfinning“

Hvernig upplifa íslenskir karlmenn það að verða feður í fyrsta skipti og ala upp börn? Hafa barneignir áhrif á þroska, hamingju og tilgang í lífinu?

Í tengslum við rannsóknina voru tekin viðtöl við níu íslenska feður á aldrinum 36–55 ára, en börn þeirra eru á aldrinum 0–13 ára. Feðurnir eiga það allir sameiginlegt að vinna utan heimilis og vera í sambúð eða hjónabandi með barnsmóður sinni auk þess að búa við fjárhagslegt öryggi. Feðurnir sem rætt var við lýsa því sem ólýsanlegri tilfinningu að fá fyrsta barnið í hendurnar.

„Mjög súrrealísk tilfinning, alsælutilfinning … tingling tilfinning í öllum líkamanum … með náladofa alls staðar,“ segir einn úr hópnum. Annar segir: „Maður fékk svona annað hlutverk og aðra tilfinningu. Þetta er eiginlega svona ólýsanlegt. Þetta voru tilfinningar sem að maður hafði aldrei fundið áður, þessi sterka ást.“

Feðurnir hafa mismunandi upplifun af fyrstu mánuðunum eftir fæðingu barnsins og upplifðu þeir sig ýmist hæfa til að sinna ungbörnum sínum eða „hjálparlausa“ og „tilgangslausa“.

„Við pabbarnir erum basically óþarfir fyrstu þrjá mánuðina, algjörlega tilgangslausir, nema bara að aðstoða mömmuna,“ segir einn faðir.

Feðurnir tala um fyrsta árið í lífi barnsins sem einstakt, en á sama tíma krefjandi tímabil.

„Maður var ekkert alveg búinn að hugsa það fyrirfram hversu mikil ábyrgð það er að eiga barn, að þetta myndi taka yfir allan sólarhringinn en maður var  bara glaður, þannig að annað skipti eiginlega ekkert máli,“  segir einn faðirinn. Annar faðir lýsir því hvernig þessi tími einkenndist af gleði og hamingju.

„Þetta var yndislegur tími, með fyrsta barnið lítið, ég held það komi ekkert í staðinn fyrir þetta.“

Fjárhagslegt álag og aukið svefnleysi

Þá kemur fram hversu krefjandi föðurhlutverkið er, eins og einn faðirinn lýsir.

„Þú getur lesið allt sem þú finnur og tekið öll námskeið, eða bara sleppt því öllu, og það skiptir engu máli, þú munt vita ekkert, þú getur verið ógeðslega undirbúinn, haft alla bóklegu færnina og allt, en það skiptir bara engu máli.“

Fram kemur að feðurnir telji lífið með börnunum ríkt af gleði og ánægju, en á sama tíma krefjandi og einkennast af tímaskorti. Þá leikur hlutverk aukið fjárhagslegt álag, aukið svefnleysi og þreyta og aukið álag á parasambandið. Oftast nær tala feðurnir um að fjárhagurinn og atvinnan væru viss hindrun í því að þeir gætu sinnt börnum sínum eins vel og þeir vildu.

„Maður lifir fyrir það að komast heim úr vinnunni og vera með fjölskyldunni. Ég væri alveg til í að vera  heima með þeim allan daginn og gæti þá sinnt þeim miklu betur en það þarf líka að vinna og það þarf að kenna þeim líka að það þurfi að hafa fyrir lífinu,“ segir einn úr hópnum.

„Yndislegt að horfa á þau vaxa og dafna“

Feðurnir tala þó um að lífið með börnunum sé mun skemmtilegra og áhugaverðara en líf þeirra var áður, þar sem börnin „krydda tilveruna“ og „gefa lífinu lit“.

„Það er allt gott við þetta, það er litið upp til manns og það er leitað til manns. Bara yndislegt að fá að horfa á þau vaxa og dafna,“ segir einn faðirinn.

„Öll knúsin og brosin, og að það séu mannverur, sem að treysta á mann í einu og öllu, öll þessi litlu svona bjánalegu moment, það er búið að rífast og orga og grenja og svo kemur eitt bros og þá eru síðustu sjö mánuðir af veseni bara, gufa upp,“ segir annar.

Annar lýsir hamingjunni sem felst í samverustundum með börnunum.

Það að ég sitji og lesi í blaði, heyri þau bara vera að leika og dúllast og horfa á sjónvarpið, það er bara ákveðin sælutilfinning.“

Þó kemur fram að auk þess sem feðurnir áliti lífið með börnunum skemmtilegra telji þeir það einnig mun erfiðara en áður.

„Það þarf að þrífa þvottinn, og halda heimilinu í standi og það eru ákveðnar skuldbindingar, þetta daglega amstur getur verið krefjandi, það er ókosturinn með þrjá, fjóra krakka. Heimilið er bara vinnustaður,“ segir einn.

Fram kemur feðurnir líta á börnin sem hluta af tilgangi lífsins.

„Það eru miklu, miklu meiri plúsar við að eiga fjölskyldu, en ekki að eiga fjölskyldu,“ segir einn og annar segir „allt betra“ eftir að börnin komu. Sá þriðji segist ekki vilja „skipta neinu út fyrir föðurlaust líf.“

Nokkrir úr hópnum lýsa föðurhlutverkinu sem besta hlutverki í lífinu og því besta sem þeir hafi upplifað. Einn segir föðurhlutverkið vera:

„Geggjað, magnað, frábært, maður er rígmontinn með þetta og elskar börnin sín alveg út í hið óendanlega, þau veita manni svo mikla hamingju, svona að meðaltali, meiri heldur en hitt, þó þau séu stundum erfið, maður er mjög hamingjusamur.“

Stuðningur er mikilvægur

Fram kemur í niðurstöðum rannsóknarinnar að ljóst sé að feðurnir telji það að eignast börn bæti við líf þeirra, þar sem þeir upplifa aukinn þroska, aukinn lífstilgang og aukna hamingju. Vissulega segja þeir lífið með börnunum krefjandi, en það virðist engu skipta í samanburði við þá gleði og hamingju sem börnin veita þeim.

Þá kemur fram að á heildina litið sé mikilvægt að styðja foreldra í að lifa farsælu lífi og fá sálrænum grunnþörfum sínum fyrir sjálfræði, hæfni og félagstengsl fullnægt. Meðal annars með því að auka svigrúm foreldra til að haga lífinu með börnunum eins og þeir vilja, til að mynda með lengra fæðingarorlofi og styttri vinnutíma, sem gæti verið hluti af því að auka sjálfræði þeirra. Aukið svigrúm gæti einnig aukið upplifun foreldra af félagstengslum, þar sem þeir hefðu meiri tíma til samveru með börnum sínum, konu sinni, stórfjölskyldu og vinum.

„Að styðja foreldra í auknum mæli með foreldrafræðslu gæti verið hluti af því að auka hæfni þeirra. Foreldrafræðslan gæti einnig verið skref í að stuðla að auknu samfélagi foreldra á Íslandi, með jákvæðum og styðjandi samskiptum. Feður í dag virðast upplifa hamingju, en þó væri hægt að breyta ýmsu til að stuðla enn frekar að hamingju feðra á Íslandi.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri

Guðmundur lýsir ótrúlegu þekkingarleysi: Leiðsögumaður spurði hvar allt hestakjötið væri
Fréttir
Í gær

Egill varar valkyrjurnar við – „Held að ríkisstjórnin megi vara sig“

Egill varar valkyrjurnar við – „Held að ríkisstjórnin megi vara sig“
Fréttir
Í gær

45 gráðu frost í Reykjavík? – Það gæti orðið raunveruleikinn

45 gráðu frost í Reykjavík? – Það gæti orðið raunveruleikinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir út á hvað málþófið á Alþingi gengur – „Það er nú öll breytingin“ 

Útskýrir út á hvað málþófið á Alþingi gengur – „Það er nú öll breytingin“