Það er ýmislegt sem mun gerast árið 2020 en meðal þess sem lítur dagsins ljós er rafmyntin Libra sem er sprottin úr herbúðum samfélagsrisans Facebook. Tilkynnt var um þróun myntarinnar um miðbik seinasta árs. Facebook leiðir þróun rafmyntarinnar en samstarfsfélagið Libra Association mun halda utan um myntina. Meðal stórfyrirtækja sem eru hluti af Libra Association eru Mastercard, Visa, eBay og Uber, en félagið verður ekki rekið í hagnaðarskyni. Libra verður umhverfisvæn rafmynt, ólíkt Bitcoin. Þá mun Libra vera bundin ákveðinni varasjóðseign, ólíkt Bitcoin, sem gerir það að verkum að Libra verður öruggari gjaldmiðill þar sem gengið verður ekki sveiflukennt.