„Þið hafið öll lesið nóg af greinum um það hvert eigi að fara á næsta ári en hvað með staðina sem þið ættuð að forðast á árinu 2020?“ segir í grein Independent um listann. „Þetta eru staðirnir sem þið ættuð að strika yfir á tossalistanum ykkar fyrir 2020.“

Eins og áður segir þá er Ísland á þessum lista. „Á Íslandi hefur ferðamönnum fjölgað gífurlega yfir síðustu fimm ár. Síðan 2015 hefur ferðamönnum fjölgað um 80 prósent, úr 1,3 milljónum í 2,32 milljónir.“

Í greininni er nefnt dæmi um afleiðingu þessarar fjölgunar á ferðamönnum. „Fyrr á þessu ári var íslensku gljúfri tímabundið lokað í kjölfar allra ferðamannana sem gerðu sér ferð þangað.“ Gljúfrið sem um nefnir er Fjaðrárglúfur en það hefur vakið mikla athygli erlendis. Gljúfrið sást bæði í sjónvarpsþáttunum vinsælu Game of Thrones, og í tónlistarmyndbandi hjá einum frægasta söngvara heims, Justin Bieber. Einhverjir hafa reynt að kenna söngvaranum um lokunina.

Fyrr á þessu ári var greint frá gríðarlegri fækkun ferðamanna hingað til lands. Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 163 þúsund í októbermánuði eða um 36 þúsund færri en í október árið 2018. Fækkun milli ára nemur 18,4%. Samkvæmt niðurstöðum talninga Ferðamálastofu á skiptingu þjóðerna munar mest um fækkun Bandaríkjamanna, en brottförum þeirra fækkaði um 25 þúsund frá því í október 2018 eða um 42% milli ára.

Þrátt fyrir að ferðamönnum til landsins hafi fækkað á liðnu ári þá eru þeir þó mun fleiri nú en fyrir fimm árum, eins og segir í grein The Independent. Áhrifin af grein sem þessari gætu þó breytt einhverjum tölum þar sem lesendahópur The Independent er afar stór. Um 3 milljónir manna fylgja fjölmiðlinum á Twitter en um 20 milljónir manns lesa miðilinn í hverjum mánuði.