Maður er sagður hafa játað á sig íkveikju í stigagangi fjölbýlishúss í Vesturbergi 4 þann 20. desember síðastliðinn. Mikill eldur kviknaði þar sem tókst að slökkva áður en henn breiddist út í íbúðir hússins. Engan sakaði en íbúar hafa allir orðið að yfirgefa híbýli sín og eyða jólunum annars staðar en á heimilum sínum. Miklar reykskemmdir eru í íbúðum og stigagangurinn sjálfur er sótsvartur. Ljóst er að íbúar hússins voru í mikilli hættu í eldsvoðanum en það tókst að forða þeim öllum úr húsinu.
Lögregla hefur enn ekkert gefið út um eldsupptök. Bruninn er enn til rannsóknar hjá tæknideild lögreglunnar. Skjáskot gengur hins vegar á milli fólks þar sem maður einn játar á sig íkveikju í húsinu. Þóra Jónsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að lögregla hafi þessi skjáskot undir höndum. Þrátt fyrir það er maðurinn ekki eftirlýstur og ekki hefur verið gefin út handtökuskipun á hann.
Þóra segir að nánari frétta sé að vænta af málinu eftir helgi.