Kókaín fannst í um eins árs barni í Norðlingaholti á jóladag en tveir einstaklingar, karl og konu, voru handteknir í aðgerðum lögreglu á vettvangi. Sérsveit ríkislögreglustjóra var einnig kölluð út vegna málsins þar sem áður hafði verið tilkynnt um skotvopn á heimilinu.
Vísir greinir frá því að kókaín hafi fundist í barninu sem var flutt í alvarlegu ástandi á sjúkrahús. Í fréttinni kemur fram að konunni hafi verið sleppt en karlinn sé enn í haldi þar sem hann var á reynslulausn.
„Afskipti okkar komu til vegna þess að það er grunur um að barnið hafi orðið fyrir einhverskonar eitrun tengri fíkniefnum. Barnið var flutt í alvarlegu ástandi á spítala,“ segir Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttavef Morgunblaðsins.