Yfir jólahátíðina var brotist inn hjá Hjálparsveit skáta í Kópavogi og töluverðu magni af flugeldum stolið. Í tilkynningu frá björgunarsveitinni segir að söluverðmæti þessara flugelda hefði verið um tvær milljónir króna og því ljóst að um mikið tekjutap er að ræða fyrir sveitina.
Flugeldunum sem var stolið eru stórar tertur, þar af margar sérmerktar Hjálparsveit skáta í Kópavogi, svokölluð afmælisterta sveitarinnar, sem var keypt inn í takmörkuðu magni.
„Tjónið er ekki síður tilfinningalegt fyrir meðlimi sveitarinnar sem hafa unnið hörðum höndum allan desembermánuð í sjálfboðavinnu að undirbúningi flugeldasölunnar. Það var svo á aðfangadag sem síðasti mannskapur yfirgaf húsið eftir leit við erfiðar aðstæður á suðurlandi,“ segir í tilkynningunni.
„Þegar komið var að í dag kom þjófnaðurinn í ljós og biðjum við alla þá sem hafa einhverjar upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglu.“