Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að fólk kaupi klippikort frá bílaþvottastöðinni Löðri við Fiskislóð í Reykjavík af öðrum en fyrirtækinu sjálfu. Á dögunum var brotist inn í bílaþvottastöðina og hafði aðili á brott með sér verðmætaskáp sem í var lausafé, en auk þess var nokkur fjöldi af 12 skipta klippikortum.
Í tilkynningu lögreglunnar kemur fram að um ónúmeruð klippikort séu að ræða og hafa starfsmenn Löðurs yfirsýn yfir seld kort og óseld kort.
„Ef fólk vill ekki kaupa köttinn í sekknum er fólki bent á að versla aðeins slíkt kort beint af starfsfólki Löðurs. Öll kort á válistanum hafa verið gerð ógild,“ segir í tilkynningunni.
Ef einhver kann að hafa upplýsingar um innbrotið eða verið boðin þvottakort frá Löðri til kaups, er viðkomandi beðinn um að senda lögreglu upplýsingar í netfangið 0234@lrh.is eða einkaskilaboð á fésbókarsíðu embættisins.