Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum á meðfylgjandi myndum vegna máls sem hún hefur til rannsóknar og eru þeir vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í tölvupósti á netfangið margret.thora@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ef einhverjir þekkja til mannanna, eða vita hvar þá er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hafa samband við lögregluna í tölvupósti á netfangið margret.thora@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lesendur eru jafnframt beðnir um að deila fréttinni og auka þannig líkur á að lögreglan nái tali af mönnunum.
UPPFÆRT: Mennirnir hafa gefið sig fram við lögreglu