fbpx
Föstudagur 02.maí 2025
Fréttir

Þarftu að komast í búð ? – Þessar verslanir eru opnar í dag

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 25. desember 2019 13:32

Umhverfismál í brennidepli Líka um jólin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þó svo flestir landsmenn viti vel að á jóladag eru verslanir almennt lokaðar, þá kemur oft fyrir að eitthvað gleymist. Kannski er heimilið vel birgt upp af nauðsynjum, nema það gleymdist að kaupa klósettpappír. Þá eru góð ráð dýr.

Það hefur tíðkast í auknum mæli undanfarin ár að ein og ein verslun svari kalli dreifhuga landsmanna sem verða að ná í þennan eina hlut sem bjargað getur jóladagsboðinu.

DV tók saman smá lista yfir þær verslanir sem hafa opið í dag, listinn er þó ekki tæmandi og eru lesendur hvattir til að benda blaðamanni á verslanir sem ættu heima á listanum.

 

Krambúðin 

Krambúðin er með opið til 18:00 í eftirfarandi verslunum; Skólavörðustíg, Lönguhlíð, Laugarlæk, Hjarðarhaga, Grímsbæ, Borgarbraut, Hringbraut, Tjarnarbraut og Selfossi.

Pétursbúð

Pétursbúð á horninu á Ránargötu og Ægisgötu verður opin til 17:00 í dag

Verslunin Rangá 

Verslunin Rangá í Skipasundi er með opið til 17:00 í dag

Lyfja Lágmúla og Smáratorgi 

Verslanir Lyfju í Smáratorgi og í Lágmúla eru opnar til miðnættis.

Apótekarinn Austurveri 

Apótekarinn í Austurveri er opinn til miðnættis.

Uppfært:  14:15

Hverfisverslunin Álfheimabúðin. 

Opið verður í Álfheimabúðinni til 20:00 í kvöld, líkt og hefur verið undanfarin ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harma að mötuneyti fyrir eldra fólk í Hafnarfirði hafi verið lokað mánuðum saman – „Þetta eru ekki vönduð vinnubrögð“

Harma að mötuneyti fyrir eldra fólk í Hafnarfirði hafi verið lokað mánuðum saman – „Þetta eru ekki vönduð vinnubrögð“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Frosti fordæmir frétt um hópnauðgun – „Hættuleg sorpblaðamennska“ – Segir að Frettin.is komi óorði á smærri fjölmiðla

Frosti fordæmir frétt um hópnauðgun – „Hættuleg sorpblaðamennska“ – Segir að Frettin.is komi óorði á smærri fjölmiðla