fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Ótrúleg uppkoma: Bíllinn sat fastur ofan á grjóti á hringtorgi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 23. desember 2019 13:55

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bíl var um helgina ekið upp á hringtorg við Njarðarbraut. Þar endaði hann ofan á grjóti og satur fastur. Þurfti dráttarbíl til að lyfta bílnum ofan af grjótinu og fjarlægja hann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og þar segir einnig frá þessu:

Rúmlega þrítugur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Tveir ökumenn voru svo grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var með fíkniefni í fórum sínum.

Tvö innbrot voru enn fremur tilkynnt til lögreglu um helgina. Brotist var inn í bát í Njarðvíkurhöfn og farið í lyfjaskáp. Ekki er ljóst hvort einhverju var stolið.

Þá var brotist inn í bíl sem skilinn hafði verið eftir við hringtorg í Vogum. Eigandi bílsins saknaði heyrnartóla og hlaupaúrs sem í bílnum voru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast
Fréttir
Í gær

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“