Foreldrar ráku upp stór augu í jólaútstáelsinu í dag þegar þeir hittu fyrir tvo jólasveina í versluninni Kids Cool Shop í Kópavogi. Voru sveinkarnir greinilega búnir að taka vel á því í jólaundirbúningnum, enda mörg börn sem þarf að gleðja í aðdraganda jóla. Hvað ætli þessir taki margar gjafir í bekkpressu? Nocco-jólasveinninn hefur vakið nokkra athygli fyrir að vera í svakalegu formi, en þessir sveinar gætu nú bara hreinlega skotið honum ref fyrir rass.
Hér má sjá Nocco sveininn til samanburðar
https://www.instagram.com/p/B6TLzC1gAeT/