fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Freydís bendir á tvískinnung í hjúkrunarfræðináminu: „Er hægt að hleypa þessu fólki inn, en ekki þeim 22 sem stóðust prófin sín?“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Sunnudaginn 22. desember 2019 18:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Freydís Halla Friðriksdóttir hefur vakið mikla athygli með pistil sem hún deildi á Facebook. Þar bendir hún á vissan tvískinnung sem ríkir í hjúkrunarfræðinámi í dag.

Þar er beitt strangri fjöldatakmörkun þrátt fyrir að skortur sé á hjúkrunarfræðingum á íslenskum heilbrigðisstofnunum.

„Það vantar hjúkrunarfræðinga. Þetta er setning sem við höfum öll heyrt og heyrum öll sennilega um það bil einu sinni í mánuði.

Núna voru 78 einstaklingar sem náðu öllum prófum í klásus í hjúkrunarfræði í Háskólanum á Akureyri. Af þessum 78 einstaklingum eru 56 sem komast áfram inn í námið. Það komast ekki fleiri áfram, alveg sama hvernig þeim gekk í prófunum. Það er vegna fjárskorts. Það er vegna þess að það eru ekki til nægilega mörg pláss fyrir nemendur inni á heilbrigðisstofnunum landsins. Er okkur allavega sagt.”

Freydís bendir á að í hópi nemenda eru einstaklingar sem hafa lagt sig mikið fram í haust og í vetur til að ná prófunum, þeirra á meðal sjúkraliðar sem hafi í mörg ár unnið innan heilbrigðiskerfisins. „Í þessum hópi er fólk sem hefur lagt mjög mikið á sig síðan í lok ágúst til þess að ná þessum prófum. Í þessum hópi eru sjúkraliðar, einstaklingar sem hafa unnið í mörg ár innan heilbrigðiskerfisins og vita nákvæmlega út í hvað þau eru að fara. Í þessum hópi er líka fólk sem er búið að reyna oftar en einu sinni að komast inn í námið. Segir það okkur ekki eitthvað?”

Á sama tíma er verið að auglýsa eftir einstaklingum til að hefja nám á 2 ára námsbraut í hjúkrunarfræði sem stendur þeim sem þegar hafa lokið háskólaprófi til boða.

„Er hægt að hleypa þessu fólki inn, en ekki þeim 22 sem stóðust prófin sín í HA? Fólk sem er jafnvel með yfir 7 í meðaleinkunn. Fólk sem hefur virkilega sýnt að það hefur áhuga á náminu. Eru frekar til peningar fyrir þá sem eru búnir með aðra háskólagráðu? Er frekar pláss fyrir þetta fólk í námsplássin á heilbrigðisstofnunum ?”

Freydís spyr hvort það sé hún ein sem finnist eitthvað athugavert við þessa aðferðarfræði og skorar hún á menntamálaráðherra, Lilju Alfreðsdóttur, að taka málið til skoðunar.

„Er ég ein um að finnast þessi staða skrýtin?  Ég skora á Lilju Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, að skoða þetta mál.”

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast

Trump brjálaður yfir fréttaflutningi um að árásin hafi misheppnast
Fréttir
Í gær

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”

Ríkisstjórnin sendir þjóðinni skilaboð: „Það er engin ástæða til ótta – en það er rík ástæða til að vera vel undirbúin”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU

Auka myndavélavöktun á grenndarstöðvum SORPU
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“

Útlendingar fengu tæpa 13 milljarða í fjárstyrki: „Þetta eru svakalega háar fjárhæðir“