fbpx
Laugardagur 13.september 2025
Fréttir

Heitavatnslaust í hluta Reykjavíkur til morguns vegna bilunar – Gæti orðið kalt á heimilum í nótt

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 21. desember 2019 14:28

Mynd af vef Reykjavíkurborgar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heitavatnslaust verður á höfuðborgarsvæðinu vestan Snorrabrautar/Bústaðavegs fram til klukkan 08:00 á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum.

„Vegna bilunar verður heitavatnslaust lau 21. desember kr. 13:45 – sun 22. desember kl. 08:00. “

Fólki er bent á að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana á heimilinu til að draga úr slysahættu sem á hættu á eignatjóni sem gæti orðið þegar vatnið verður sett á að nýju. Glugga ætti að hafa lokaða og ekki hafa útidyr opnar lengur en þörf krefur til að ekki kólni inn á heimilum.

Samkvæmt frétt Vísis um máið þá fannst alvarlegum leki í einni af aðalæðum hitaveitu Veitna um hádegisbilið í dag. Reynt hefur verið að draga úr lekanum svo hægt væri að bíða með viðgerð fram á kvöldið, en þær tilraunir báru ekki árangur sem erfiði.

Samkvæmt veðurspá fyrir kvöldið og nóttina verður hiti um frostmark og því ljóst að á einhverjum heimilum sem bilunin hefur áhrif á verður kalt í nótt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Gífurleg heift á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi – „Ásakanir minnihlutans á hendur starfsmönnum um vísvitandi útúrsnúning eru ómaklegar og óásættanlegar“

Gífurleg heift á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi – „Ásakanir minnihlutans á hendur starfsmönnum um vísvitandi útúrsnúning eru ómaklegar og óásættanlegar“
Fréttir
Í gær

Lögreglan á Suðurnesjum fór ekki að lögum í máli bandarískrar konu

Lögreglan á Suðurnesjum fór ekki að lögum í máli bandarískrar konu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir litlir hreppar ræða sameiningu

Tveir litlir hreppar ræða sameiningu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna sendir Kristrúnu skýr skilaboð: „Það yrðu mikil mistök fyrir núverandi stjórnvöld”

Sólveig Anna sendir Kristrúnu skýr skilaboð: „Það yrðu mikil mistök fyrir núverandi stjórnvöld”