fbpx
Miðvikudagur 25.júní 2025
Fréttir

Íslenski nýlenduherrann – „Samherjaskipstjóri sem flúði fyrstur sökkvandi skip“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 31. desember 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

DV ákvað í ár að leyfa lesendum að senda inn tilnefningar til Skúrks ársins samfara því að tilnefna Mann ársins. Tilnefningarnar voru fjölmargar en þegar opið hafði verið á innsendingar í viku á vef DV var ljóst að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, en nú í leyfi, fengi langflestar tilnefningar. DV tók þessar tilnefningar og setti þær í nafnlausa dómnefnd og þar var einróma samþykkt að veita Þorsteini Má þennan vafasama titil.

Sjá einnig: Helgi Seljan er maður ársins.

Því eru Maður og Skúrkur ársins í DV bundnir böndum, þar sem það var meðal annars Helgi Seljan sem ljóstraði upp um vafasama og jafnvel glæpsamlega starfshætti Samherja í Namibíu.

Hann er kallaður Mái

Þorsteinn, eða Mái eins og hann er kallaður af sveitungum sínum fyrir norðan, nældi sér í skipstjórnarréttindi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1974 og útskrifaðist sem skipaverkfræðingur frá Norges Tekniske Högskole árið 1980. Þorsteinn eignaðist Samherja árið 1983 ásamt frændum sínum, Þorsteini og Kristjáni Vilhelmssonum. Upphafið að þessu útgerðarveldi má rekja til þess að Mái sá ryðkláf liggja í höfninni í Hafnarfirði, togarann Guðstein GK sem gerður hafði verið út frá Grindavík með lélegum árangri. Mái hugsaði sér gott til glóðarinnar og taldi tilvalið að breyta Guðsteini í frystitogara, enda hafði hann sérhæft sig í að frystivæða togara. Mái sannfærði Þorstein, sem þá var skipstjóri, og Kristján, sem þá var vélstjóri, um að taka þátt í ævintýrinu og svo fór að þremenningarnir náðu samkomulagi við Landsbankann um að kaupa útgerðina og Samherji hf. varð til. Þorsteinn varð skipstjóri á togaranum, Kristján varð yfirvélstjóri og Mái sá um útgerðina í landi. Allt gekk þetta eins og í sögu og árið 1985 keypti Samherji helming Hvaleyrar í Hafnarfirði, fyrirtæki sem stundaði alhliða fiskvinnslu og útgerð togarans Víðis. Þá var útgerðarævintýrið hafið. Þremenningarnir voru kallaðir sægreifar, Samherji „norðlenska spútnikfyrirtækið“ og Mái talinn „efnilegasti frumkvöðull Íslands.“

Már og Þorsteinn.

Stríðið í Seðlabankanum

Áður en Samherjaskjölin litu dagsins ljós stóð Þorsteinn Már í stappi við Má Guðmundsson, þáverandi seðlabankastjóra, og hafði gert allar götur síðan húsleit var framkvæmd í Samherja árið 2012 vegna meintra brota fyrirtækisins á gjaldeyrislögum. Fyrirtækið var aldrei ákært. Samherji hefur höfðað skaðabótamál á hendur Seðlabankanum en stuttu fyrir umfjöllun Kveiks um meintar mútugreiðslur og spillingu beindi Þorsteinn Már spjótum sínum einnig að RÚV og Helga Seljan og telur ljóst að gagnaleki úr Seðlabanka til RÚV hafi átt sér stað. Fullyrti hann að Helgi Seljan og RÚV væru einnig gerendur í málinu.

Stuttu eftir að Samherjaskjölin opinberuðust steig Þorsteinn Már tímabundið úr stóli forstjóra Samherja á meðan á rannsókn á meintum brotum stæði yfir. Óljóst er hvað það getur tekið langan tíma og alls kostar óvíst hvort hann snúi einhvern tímann aftur.

HLIÐAREFNI

Meðal ummæla sem lesendur létu falla um Þorstein Má, til að rökstyðja tilnefningu til Skúrks ársins

„Fyrir að taka þátt í mútugreiðslu og spillingu og misnota fátæka þjóð sjálfum sér til framdráttar.“

„Fyrir að arðræna eina fátækustu þjóð veraldar eftir að hafa rænt Íslendinga og sölsað undir sig 1/7 fiskveiðikvóta með svikum og prettum. Það var ekki nóg að Samherji fengi u.þ.b. 2.000 tonna þorskígildiskvóta frítt, svokallaðan skipstjórakvóta, heldur þá fyrst byrjaði ballið með Sjálfstæðisflokkinn sem tryggingu á bak við sig, ráðherra og þingmenn.“

„Al Capone er eins og kórdrengur hliðina á honum.“

„Arðræningi af verstu gerð og skammast sín ekkert fyrir það.“

„Samherjaskipstjóri sem flúði fyrstur sökkvandi skip.“

„Hagar sér eins og nýlenduherra.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum

Fósturmóðir kærði ríkið fyrir húsleit lögreglu – Faðirinn hafði áður kært hana fyrir að svipta hann umsjá yfir syni sínum
Fréttir
Í gær

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum

Segir að Rússar hafi afhent Úkraínumönnum lík rússneskra hermanna í nýlegum skiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi

Segir að Úkraína sé enn með smáhluta af Kúrsk á sínu valdi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi

Rússar óttast nýja drónaárás – Færa herflugvélar og gera byrgi