Olga, lettnesk kona, sem búsett var hér á landi í tíu ár segir íslenskan barnsföður hennar hafa beitt hana hótunum eftir að hún flutti aftur heim til Lettlands með unga dóttur þeirra. Maðurinn krefst þess að fá barnið afhent og sakar Olgu um barnsrán. Olga segir hann lítinn sem engan áhuga hafa sýnt dótturinni fram að því. Segist hún óttast um öryggi dóttur sinnar á Íslandi.
Olga ræddi um aðstæður sína við lettneska fréttamiðilinn Apollo fyrr í mánuðinum. Olga er fædd og uppalin í borginni Rēzekne í austurhluta Lettlands en hún flutti til Íslands árið 2009, eftir að hún útskrifaðist úr skóla. Þar kynntist hún íslenskum manni og hófu þau sambúð. Olga segir manninn hafa látið sig hverfa eftir að hún tilkynnti honum að hún væri ófrísk. „Hann vildi augljóslega ekki eignast barnið vegna þess að hann var mjög ungur, hann var sjálfur nýlega orðinn lögráða,“ segir hún.
Hún segir manninn hafa þrýst á hana að gangast undir fóstureyðingu, en það hafi hún ekki viljað gera. Hún segir þau hafa tekið upp sambúð að nýju meðan á meðgöngunni stóð, en aðeins í stuttan tíma.
Eftir að dóttirin fæddist öðlaðist Olga tvöfalt ríkisfang, á Íslandi og í Lettlandi. Á sama tíma var hún skráð sem einstæð móðir í Þjóðskrá, enda bjó hún ekki lengur með barnsföður sínum. Hún segir manninn ekki hafa sýnt neinn áhuga á að umgangast barnið, og lengi vel hafi hún ekki fengið greitt meðlag.
„Á tímabili voru einhver samskipti, vegna þess að mér fannst nauðsynlegt að dóttir mín fengi að umgangast pabba sinn. En hann sýndi henni engan áhuga,“ heldur hún áfram.
Olga segir að á þessum tíma hafi hún þurft að reiða sig á bætur til að draga fram lífið. Stundum hafi hún ekki átt peninga fyrir mat og þurfti hún þá að leita til hjálparstofnana. Hún fór að eigin sögn aftur út á vinnumarkaðinn þegar dóttir hennar varð orðin aðeins eldri. Á tímabili þurfti hún að vera í tveimur störfum til að geta séð sér og dóttur sinni farborða. Hún segir barnsföður sinn seinna meir hafa byrjað að taka örlítið meiri þátt í lífi dótturinnar en áður, hann hafi hitt hana við og við og fylgt henni í leikskóla. Þá hafi hann loksins farið að greiða meðlag með dótturinni.
Olga segir það hafa komið að því að hún vildi flytja aftur til heimalandsins, enda var henni ljóst að engin atvinnutækifæri biðu hennar á Íslandi. Dóttir hennar hafði þá lokið fyrsta bekk í grunnskóla. Segist Olga hafa tjáð barnsföður sínum að hún vildi flytja til Lettlands með dótturina.
Olga að segir þær mæðgur hafa heimsótt fjölskyldu sína í Lettlandi og í kjölfarið hafi hún notað tækifærið og svipast um eftir hentugu námi eða vinnu. Segist hún hafa tjáð barnsföður sínum á þeim tíma að hana langaði að flytja aftur til heimalandsins.
Hún segir manninn ekki hafa viljað ræða málið frekar á þeim tímapunkti, en stuttu seinna fór Olga ásamt dóttur sinni í frí til Lettlands. Hún segir barnsföður sinn hafa sagt að henni væri frjálst vera áfram í Lettlandi, en hann vildi að dóttir þeirra kæmi aftur til Íslands, þar sem hann vildi að hún héldi áfram grunnskólanámi hér á landi. Olga segir hann hafa hótað öllu illu ef hún myndi ekki skrifa undir umgengnissamning.
„Hann fór þá að hóta mér því að koma út og sækja barnið, þar sem hann væri í fullum rétti til þess. Ég er dauðhrædd um að dóttir mín verði tekin frá mér endanlega, ef hún fer til Íslands,“ segir Olga en hún kveðst hafa boðið barnsföður sínum að koma út til Lettlands og hitta stúlkuna þar.
Fram kemur að málið verði tekið fyrir hjá lettneskum dómstólum seinna í mánuðinum.