fbpx
Mánudagur 09.júní 2025
Fréttir

Þekktir íslenskir svikahrappar – Fatlaðir, aldraðir og fátækir algeng fórnarlömb – „Hann sveik mig trekk í trekk“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 21. desember 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á dögunum greindi DV frá umfangsmiklu fjársvikamáli tengdu hinni meintu rafmynt OneCoin. Fram hefur komið að búlgarska athafnakonan Ruja Ignatova hafi náð að svíkja út tæpa þúsund milljarða íslenskra króna á heimsvísu. Málið hefur vakið mikla athygli hér á landi en vitað er að nokkrir Íslendingar hafi látið blekkjast af svikamyllunni.

Hér á eftir verða rifjuð upp nokkur eftirminnileg fjársvikamál sem upp hafa komið hér á landi. Einstaklingarnir sem fjallað er um eiga það sameiginlegt að hafa svikið háar fjárhæðir af fjölda manns. Í mörgum tilfellum eru fórnarlömbin efnalitlir eða veikir einstaklingar sem hafa fallið fyrir gylliboðunum en endað í sárum og jafnvel orðið gjaldþrota.

„Virðist vera algjörlega siðlaus“

Halldór Viðar Sanne á sér langa sögu í svikum og prettum og hefur skilið mörg hundruð Íslendinga eftir með sárt ennið.

Halldór er líklega þekktastur í tengslum við svokallað iPhone-svindl í Danmörku árið 2013. Svindlið gekk út á að Halldór sannfærði hátt í hundrað einstaklinga til að kaupa fyrir sig  iPhone-síma á raðgreiðslum í Danmörku sem hann myndi síðan selja áfram á Íslandi fyrir hærra verð. Halldór hirti síðan símana sjálfur og seldi og hafði rúmlega 110 milljónir upp úr krafsinu. Fjölmargir létu blekkjast, en flest fórnarlömbin voru Íslendingar búsettir í Danmörku og þar af margir fátækir námsmenn. Þeir sem urðu verst úti sátu uppi með skuldir upp á margar milljónir.

Halldór Viðar er einna helst þekktastur í tengslum við iPhone-svindlið svokallaða

DV fjallaði ítarlega um Halldór í upphafi árs 2013 þegar hann sat í gæsluvarðhaldi í Kaupmannahöfn vegna umrædds iPhone-svindls. Á sama tíma voru nokkur mál gegn Halldóri, vegna meintra fjársvika hans, til rannsóknar hjá lögreglu hér á landi.

Halldór var handtekinn í Kaupmannahöfn haustið 2012 og sætti gæsluvarðhaldi þar til dómur féll í máli hans í mars 2013. Hann var var gerður brottrækur frá Danmörku að afplánun lokinni en hann afplánaði hluta dómsins á Kvíabryggju.

Halldór Viðar gekk enn lengra þegar hann auglýsti lífvarðanámskeið sem fara átti fram í Kaupmannahöfn árið 2013. Fjölmargir, þar á meðal Íslendingar, létu blekkjast og greiddu tæplega 400 þúsund í námskeiðsgjald. Námskeiðinu var ítrekað frestað og aldrei varð neitt úr því. Í frétt DV árið 2013 kom fram að Halldór hefði hótað óánægðum viðskiptavinum barsmíðum.

 „Hann er mjög klár í að blekkja fólk og virðist vera algjörlega siðlaus maður. Við vissum að það væru kærur á hendur honum hérna og konan mín kærði hann. Þá hringdi lögreglan og sagði að hann hefði sagt að hún væri að ofsækja hann og væri að reyna rústa mannorði hans hér á landi,“ sagði viðmælandi DV sem greiddi fyrir son sinn.

Í mars 2017 var síðan greint frá því að Halldór Viðar hefði verið hnepptur í gæsluvarðhald, grunaður um milljónasvik með því að hafa fé af fólki á leigumarkaði. Fjölmargir Íslendingar höfðu þá lagt fram kæru á hendur á honum og komu nokkrir þeirra fram í fjölmiðlum. „Ástæða þess að ég segi þessa sögu er til að aðrir hugsi sig um áður en farið er í viðskipti við þennan siðblinda mann,“ sagði Bergljót Snorradóttir í samtali við Fréttablaðið, en hún var ein af þeim sem lentu í svikamyllu Halldórs.

Svikin gengu út á það að Halldór gerðist ítrekað milliliður fyrir fólk í leit að leiguhúsnæði. Tók hann íbúðir á leigu, framleigði þær öðrum en stal síðan leigugreiðslum þeirra og greiddi aðeins fyrsta mánuðinn til réttra eigenda. Þá er hann einnig grunaður um að hafa selt farsíma sem svo aldrei fengust afhentir.

„Auðvitað sé ég eftir því sem ég gerði. Ég sveik marga, en ég hef verið dæmdur fyrir þau brot og tekið út minn dóm. Nú er ég breyttur maður,“ sagði Halldór Viðar í samtali við Fréttablaðið á sínum tíma.

Í ágúst sama ár var Halldór dæmdur í eins árs fangelsi fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika og fjárdrátt. Þá var hann dæmdur til að greiða öllum sem kröfðust bóta, hverjum fyrir sig, 150 þúsund krónur í málskostnað. Honum var einnig gert að greiða samtals 3,6 milljónir króna í skaðabætur.

Halldór heitir í dag Aldo Viðar Bae-Sanne. Á heimasíðu hans á LinkedIn er hann skráður sem stofnandi og forstjóri Smart Capital Inc. í Kanada. Fram kemur að fyrirtækið veiti ráðgjöf til einstaklinga í fjárfestingahugleiðingum.

Þá segist hann hafa meira en 20 ára reynslu í sölu og alþjóðlegri markaðssetningu í tæknigeiranum, hann hafi meðal annars  stofnað fyrirtækið SmartSMS og unnið að markaðssetningu fyrir fyrirtæki á borð við Coca Cola, Visa og Volkswagen.

Skjáskot af síðu LinkendIn

Einstæðir öldungar voru fórnarlömbin

Árið 2001 var Þór­unn Sig­ur­veig Aðal­steins­dótt­ir dæmd í tveggja ára fang­elsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa með skipulögðum blekkingum fengið sjö karlmenn, sem allir voru aldraðir einstæðingar, til þess að lána henni peninga. Ljóst var þó að hún átti enga möguleika á að endurgreiða þeim lánin. Alls náði hún að hafa rúmlega 55 milljónir króna út úr mönnunum.

Í umfjöllun DV árið 2001 kom fram að flest benti til þess að svikin hefðu verið vel undirbúin. Þórunn hafði upphaflega samband við Bændasamtök Íslands og óskaði eftir upplýsingum um roskna einstæða bændur undir því yfirskini að hún hefði áhuga á því að komast sem ráðskona i sveit.

Umfjöllun DV 2001
„Ég þurfti að greiða skuldir og borga fyrir viðhald á húsnæði,“ var skýring Þórunnar fyrir dómi. Ljósmynd/Tímarit.is

Hún hafði því næst sam­band við sjö menn sím­leiðis og blekkti þá til að lána henni pen­inga. Hún beitti ótrú­leg­um ósann­ind­um gagn­vart sumum þeirra, til að mynda með því að segja þeim að börn hennar væru al­var­lega veik og jafn­vel að þau væru lát­in.

Þórunn var talin hafa notað sér ranga hugmynd þeirra um greiðslugetu hennar og eignir en þeir vissu ekki hver af annars lánveitingum til hennar né þekktu skuldastöðu hennar við aðra. Í niðurstöðu héraðsdóms á sínum tíma kom fram að mikið fjár­tjón hefði orðið af brot­um henn­ar sem var virt til refsi­hækk­un­ar.

Meistaradeildarsvikarinn

Pétur Emil Gunnarsson hafði háar fjárhæðir af fjölmörgum Íslendingum árið 2011. Um það leyti sem málið kom upp var Pétur Emil búsettur í Bretlandi. Stundaði hann það að svíkja fé út úr íslenskum fótboltaáhugamönnum með því að selja þeim miða á leiki með Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Fólkið fékk hins vegar aldrei miðana sem Pétur Emil lofaði að senda því. Hann hafði meðal annars sett sig í samband við fólk á samskiptasíðunni Facebook auk þess sem hann hafði samband við það í gegnum síma. Pétur Emil tók við greiðslu fyrir miðana með því að láta millifæra peninga á sig í gegnum heimabanka. Kaupendur miðanna fengu þá hins vegar aldrei afhenta en Pétur Emil hélt söluverði miðanna eftir.

DV fjallaði ítarlega um málið á sínum tíma. Ljósmynd/Tímarit.is

Þannig hafði Pétur Emil til dæmis 312 þúsund krónur af fjögurra manna vinahópi sem hann sagðist ætla að afhenda fjóra miða á úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu fyrr á árinu á milli Manchester United og Barcelona. „Það er alltaf þetta, ég borga á morgun, ég kemst ekki í bankann og eitthvað svoleiðis,“ sagði einn úr vinahópnum í samtali við DV á sínum tíma.

DV ræddi á sínum tíma við fleiri af fórnarlömbum Péturs, meðal annars mann sem greiddi Pétri 75 þúsund krónur fyrir miða á leik með Manchester United í Meistaradeildinni auk flugmiða til þess lands sem leikurinn átti að fara fram í. Þá fylgdi það einnig með að miðarnir ættu að vera í VIP-stúku og að maðurinn ætti að fá mat meðan á leiknum stæði.

Pétur Emil sagði sjálfur í viðtali við DV í maí 2011 að hann ætlaði að endurgreiða fórnarlömbunum það sem hann hafði af þeim. Jafnframt sagðist hann ekki skilja af hverju íslenskir fjölmiðlar væru að fjalla um málið. „Ég gerði bara mikil mistök og ég mun leiðrétta þau,“ sagði hann meðal annars í samtali við blaðamann.

Í september sama ár greindi DV hins vegar frá því að Pétur Emil hefði enn ekki endurgreitt þeim sem hann hafði fé af fyrr á árinu. Eitt af fórnarlömbum Péturs Emils sagði hann ennþá skulda honum 300 þúsund krónur.

Sveik 30 milljónir út úr níræðum Alzheimersjúklingi

Svikaferill Sigurðar Kárasonar nær langt aftur í tímann en hann rak meðal annars Tívolíið í Hveragerði á sínum tíma. Á þeim árum sem Tívolíið var starfrækt komu upp ýmis deilumál og fjármálaerfiðleikar í tengslum við reksturinn og að lokum varð Tívolíið gjaldþrota. Árið 1985 keypti Sigurður Hótel Borg ásamt þáverandi viðskiptafélaga sínum en hótelið var fjórum árum síðar boðið upp á nauðungaruppboði.

Í september 1989 voru Sigurður Kárason og félagi hans, Pálmi Magnússon, dæmdir í fimm mánaða fangelsi hvor fyrir fjársvik og fyrir að hafa haldið eftir vörslufé af launum starfsmanna Tívolísins og Hótel Borgar.

Sigurður á sínum yngri árum. Ljósmynd/Tímarit.is

Níu árum síðar, árið 1998, kom upp hið svokallaða „millifærslumál“ sem endaði með því að Sigurður hlaut 20 mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa látið Alzheimersjúka konu á níræðisaldri leggja rúmlega 30 milljónir króna inn á bankareikning hans.

Árið 2014 komst Sigurður enn og aftur í fréttirnar þegar hann var sakaður um að hafa svikið á annað hundrað milljónir króna út úr sextán einstaklingum, en brotin voru framin á árunum 2006 til 2010. Svikamylla Sigurðar gekk út á það að hann fékk einstaklinga til að leggja inn á hann peninga, sem hann sagðist meðal annars ætla að nýta til gjaldeyrisviðskipta og til kaupa á krónubréfum. Fólkið átti svo að njóta ávöxtunar sem yrði til vegna viðskiptanna við Sigurð. Ekkert varð þó um efndir en Sigurður er talinn hafa notað peningana til að greiða eldri skuldir og eins til eigin framfærslu.

Ljósmyndari DV náði þessar mynd af Sigurði þegar dómur var kveðinn upp í héraðsdómi.

Mörg fórnarlambanna voru félitlir einstaklingar sem tóku lán eða yfirdrátt til að geta látið Sigurð fá peninga. Suma hafði Sigurður hitt á förnum vegi en í hópnum var meðal annars prestur, bensínstöðvarstarfsmaður, flóttamaður og vörubílstjóri.

Einn þeirra sagði fyrir dómi að Sigurður væri svo sannfærandi að hann „hefði getað dáleitt mann“.

„Hann sveik mig trekk í trekk. Hann hafði greinilega gríðarlega góða þekkingu í því að tala skynsamlega um þetta. Hann kom gríðarlega vel fyrir. Ég hef fáa hitt sem hafa eins góða þekkingu og talanda á hlutum eins og þessi maður,“ sagði annað fórnarlamb Sigurðar fyrir dómi.

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sigurð að lokum í tveggja og hálfs árs fangelsi. Hæstiréttur Íslands staðfesti síðar dóminn.

Hafði fé af fötluðum bróður sínum

Árið 1994 voru Hafsteinn Einarsson lögfræðingur og Einar Guðbjartsson, fyrrverandi áfengismeðferðarfulltrúi, ákærðir fyrir að hafa haft 3,3 milljónir út úr 63 ára gömlum sjúklingi á meðferðardeildinni þar sem Einar starfaði. Peningana nýttu þeir í eigin þágu.

Í umfjöllun Helgarpóstins á sínum tíma var vakin athygli á því að Hafsteinn ætti langan sakaferil að baki, feril sem spannaði meira en tvo áratugi. Á meðal fórnarlamba hans voru lamaður bróðir hans, Fríkirkjuprestur og Skipavík, þaðan sem hann var rekinn fyrir fjárdrátt. Hann hafði þó aldrei áður verið ákærður.

Þá kom fram að fjölskylda Hafsteins hafði fyrir löngu snúið baki við honum vegna ýmissa svika sem hann hefði beitt systkin sín og tengdafólk.

Fram kom að strax á námsárunum í lagadeild hefði Hafsteinn orðið uppvís að því að fá fólk til að skrifa upp á víxla fyrir sig sem hann lét svo falla á viðkomandi án nokkurrar tilraunar til að greiða þá sjálfur.

Umfjöllun Helgarpóstins árið 1994. Ljósmynd/Tímarit.is

Þá lét hann bróður sinn taka á sig víxil upp á fimm hundruð þúsund krónur sem hann skrifaði upp á fyrir Hafstein. „Ég skrifaði upp á víxil fyrir Hafstein til að koma þessu kvikindi í gegnum nám,“ sagði bróðirinn í samtali við Helgarpóstinn. „Ég hef ekki talað við hann síðan. Hann kom svo illa fram við mann og laug því stöðugt að hann væri búinn að redda þessu.“

Þá kom fram í umfjöllun Helgarpóstins að annar bróðir Hafsteins, sem var lamaður og er nú látinn, átti bíl sem hann fékk með tollfríðindum og hann hugðist selja. Hafsteinn sá um viðskiptin og fékk þriðja bróðurinn til að útvega honum veðleyfi til að greiða tollana. Hafsteinn hirti andvirði bifreiðarinnar sjálfur en fatlaði bróðirinn sat eftir með sárt ennið. Þetta fékkst staðfest innan fjölskyldunnar

Tvö önnur systkin Hafsteins fóru þó verst út úr viðskiptum sínum við hann en Hafsteinn sveik út úr þeim milljónir króna og skildi þau eftir eignalaus.

Einnig kom fram í Helgarpóstinum á sínum tíma að Hafsteinn hefði orðið sér úti um stór lán hjá Búnaðarbankanum í Stykkishólmi í nafni Skipavíkur og notað peningana til að byggja sér glæsilegt einbýlishús en húsið var kallað „Kapellan“ meðal íbúa bæjarins vegna sérstæðs byggingarstíls. Bankinn tók húsið fjárnámi en söluverð þess dugði engan veginn fyrir lánunum. Skipavík varð því að greiða kostnaðinn vegna persónulegra fjárfestinga forstjórans. Hafsteinn var rekinn frá fyrirtækinu árið 1974 fyrir fjárdrátt en stjórn Skipavíkur sá ekki tilgang í að leggja fram kæru því hann var eignalaus.

Á öðrum stað kom fram að Hafsteinn hefði lengi búið hjá fyrrverandi tengdamóður sinni sem var ellilífeyrisþegi og hún tók einnig á sig skuldbindingar fyrir Hafstein sem hann hirti ekki um að standa skil á, samkvæmt fleiri en einni heimild innan fjölskyldunnar. Hafsteinn var gerður gjaldþrota í janúar 1993.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kærir Fjarðabyggð vegna útboðs á parhúsi – „Þetta lyktar af klíkuskap og gerir lítið úr þeim sem buðu og vinnu fasteignasalans“

Kærir Fjarðabyggð vegna útboðs á parhúsi – „Þetta lyktar af klíkuskap og gerir lítið úr þeim sem buðu og vinnu fasteignasalans“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins

Þekktir hlaupa í Hengil Ultra stærsta utanvegahlaupi landsins
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“

Þórunn greip inn í þegar læti urðu á Alþingi – „Forsætisráðherra er með orðið“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl

Landfari opnar nýtt þjónustuverkstæði og frumsýnir nýjan rafmagnsvörubíl