Samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV hefur Félagsvísindasvið Háskóla Íslands tekið lektorinn Kristján úr kennslu fyrir nokkru. Kristján er lektor við Lagadeild háskólans sem fellur undir Félagsvísindasvið. Kristján mun hafa verið tekinn úr kennslu fyrir að mæta illa auk þess sem grunur var um vafasamt líferni, drykkju og fíkniefnaneyslu.
Samkvæmt sömu heimildum höfðu nemendur lýst yfir áhyggjum af ástandi Kristjáns sem oft mætti ekki til kennslu. Hins vegar er talið að hvorki nemendur Kristjáns né starfsmenn Félagsvísindasviðs hafi vitað um það sem hefur verið í gangi á heimili lektorsins og rakið er í frétt DV fyrr í dag. Er hann talinn hafa boðið unglingsstúlkum fíkniefni gegn kynlífi og um tíma verið með erlendar vændiskonur á heimili sínu. Þá er ekki langt síðan lögreglan var kölluð að heimili Kristjáns vegna ungrar stúlku sem hafði tekið of stóran skammt af fíkniefnum og var í lífshættu, og sjálfur hefur Kristján verið rændur og frelsissviptur af gesti í partýi hjá sér. Nágrannar Kristjáns hafa margoft hringt á lögreglu vegna partýhávaða frá heimili lektorsins.
DV hermir enn fremur að ferlið gagnvart Kristjáni hjá Félagsvísindasviði hafi ekki verið komið það langt að búið væri að segja honum upp störfum. Hann heldur enn titlinum og launum en hefur ekki fengið að kenna undanfarið. Einn viðmælandi DV, sem starfar við skólann, telur líklegt að frétt DV sem afhjúpar líferni lektorsins og hvað gengið hefur á heima hjá honum verði til að flýta því að honum verði endanlega sagt upp störfum.