fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Veðrið verður verst á höfuðborgarsvæðinu eftir klukkan fimm

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 10. desember 2019 16:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar þetta er ritað er óveðrið töluvert frá því að ná hámarki í Reykjavík en mjög mun bæta í vind eftir kl. 17. Veðrið verður mjög slæmt fram til klukkan tíu í kvöld en þá fer að lægja örlítið aftur.

Lögreglan í Reykjavík birti áðan mynd úr Aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð en hluti af þeim sem standa þar vaktina eru lögreglumenn. Með myndinni birtir lögreglan eftirfarandi tilkynningu:

Við vekjum athygli á því að appelsínugul viðvörun er nú í gildi á höfuðborgarsvæðinu, en allt bendir til þess að veðurspár muni ganga eftir. Jafnvel er talið að vindurinn verði heldur meiri en búist var við, en reikna má með að veðrið á höfuðborgarsvæðinu verði verst frá kl. 17 og fram til 21 eða 22 í kvöld. Fólk er beðið um að halda sig innandyra og vera alls ekki á ferðinni nema að mjög brýna nauðsyn beri til. Vonandi hafa allir náð að koma lausamunum í skjól í sínu nánasta umhverfi enda mikil hætta á foktjóni í þessu veðri. Meðfylgjandi mynd var tekin í Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins í Skógarhlíð, en þar má sjá hluta af okkar fólki sem stendur vaktina í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Í gær

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun