fbpx
Fimmtudagur 02.maí 2024

Vandamál: Getur ekki hætt að hugsa um typpastærð fyrrverandi elskhuga kærustunnar

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 10. desember 2019 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Kærasta mín sagði mér frá sínum mörgu fyrrverandi elskhugum og ég get ekki hætt að hugsa um þá,“ segir örvæntingarfullur karlmaður í bréfi til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun.

„Hún er 48 ára, umhyggjusöm og vingjarnleg. Ég er 50 ára.“

Þau hafa verið saman í ár og fór hún yfir kynlífs- og sambandssögu sína.

„Hún segir að hún stundaði fyrst kynlíf þegar hún var 15 ára. Hún giftist síðan ofbeldisfullum manni þegar hún var 17 ára. Svo átti hún sex ára ástarsamband með giftum karlmanni, nokkur einnar nætur gaman og síðan var hún með öðrum karlmanni í tíu ár,“ segir maðurinn.

„Hún sagði að þeir væru allir með stór typpi – sem ég er ekki með, og þetta lætur mér líða óæðri þeim. Hún hefur fullvissað mig um að þegar hún stundar kynlíf með mér, þá er það besta kynlíf sem hún hefur upplifað og hún fær fullnægingu í nánast hvert skipti, sem hún hafði aldrei gert áður. Ég skil ekki af hverju hún sagði mér frá fortíð sinni.“

Deidre segir:

„Stærð er ekki eitthvað sem þarf til að vera góður elskuhugi. Hún er að njóta þess að stunda besta kynlíf í heimi með þér og fá fullnægingu. Ég þori að veðja að hún kvarti ekki yfir því að þú sért ekki jafnstór og þeir. Hún hefur líklegast verið að leita að ást og virðingu og hefur fundið það í þér. Það er þess vegna að henni fannst hún geta sagt þér frá fortíð sinni. Ekki láta óöryggi eyðileggja það sem þið eigið saman.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – þetta er kjarni The B Team

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir – þetta er kjarni The B Team
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Byrjunarliðin í stórleik kvöldsins – Lítið kemur á óvart

Byrjunarliðin í stórleik kvöldsins – Lítið kemur á óvart
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fernandes ekki viss hvað gerist næst – ,,Þarf að hugsa um mína framtíð“

Fernandes ekki viss hvað gerist næst – ,,Þarf að hugsa um mína framtíð“
Eyjan
Fyrir 16 klukkutímum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.