fbpx
Þriðjudagur 01.júlí 2025
Fréttir

Gunnar Smári segir þetta meðal stærri glæpa Sjálfstæðisflokksins – „Ekki klókt að skipuleggja eggjabú með minkum“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 27. nóvember 2019 13:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og Sósíalisti, segir að húsnæðismarkaðurinn sé í höndum glæpamanna. Hann segir nauðsynlegt að afglæpavæða þann markað sem fyrst. Í stöðufærslu á Facebook fer hann yfir sögu núverandi kerfis og rót húsnæðiskreppunnar.

„Það þarf breytta umgjörð í húsnæðismálum, segir ráðherrann. Það þarf fyrst og síðast að af-græðgisvæða húsnæðismarkaðinn. Þegar í ljós kom á fyrri hluta síðustu aldar að landlords sem reyndu að hagnast sem mest á húsnæðisþörf almennings voru að éta samfélögin að innan ákváðu flestar þjóðir að byggja upp félagslegt íbúðakerfi, sem ýmist var í eigu og rekstri sveitarfélaga eða sjálfseignarstofnana, oft með sterkri aðkomu verkalýðsfélaga,“ segir Gunnar Smári og bætir við:

„Við stigum aðeins lítil skref í þessa átt þar sem flestir flokkar ráku grimma séreignarstefnu í húsnæðismálum. Verkamannabústaðir, sem var félagslegt séreignakerfi, urðu þannig tvöfalt stærri en félagslegar leiguíbúðir sveitarfélaga. En samanlagt urðu þessi tvö kerfi miklum mun minni hluti húsnæðismarkaðarins á Íslandi en félagslega kerfið í nágrannalöndum okkar.“

Horfðu til harðstjóra

Gunnar Smári segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi litið til ógnarstjórnar harðstjórans Augusto Pinochet hvað þetta varðar. „Þegar Sjálfstæðisflokkurinn, undir forystu Davíðs Oddssonar, tók upp nýfrjálshyggju herforingjastjórnarinnar í Chile, var félagslega kerfið á húsnæðismarkaði brotið niður í samstarfi við þann flokk sem hverju sinni lagðist undir helstefnu Sjálfstæðisflokksmanna. Verkamannabústaðirnir voru einkavæddir með því að eigendum íbúðanna var leyft að selja íbúðirnar út úr kerfinu og telst það meðal stærri glæpa Sjálfstæðisflokksins gegn samfélaginu. Á sama tíma var lok sett á uppbyggingu félagslegrar leiguíbúða og þær víða seldar. Það var sem sagt bakkað út úr þeim veikburða vörnum sem Íslendingar höfðu byggt upp gegn hrægömmum á húsnæðismarkaði, gróðafyrirtækjum sem vildu hagnast sem mest á húsnæðisþörf fólks,“ segir Gunnar Smári.

Sópuðu upp íbúðirnar

Gunnar Smári segir leigufyrirtæki hafi sópað öllum íbúðum sem almenningur missti í hruninu. „Niðurstaðan varð húsnæðismarkaður sem stýrt er af gróðafyrirtækjum. Á aðra höndina eru lóðabraskarar og verktakar sem sveitarfélögin fóðra með uppboðum á lóðum og skipulagi sem hentar þeim sem vilja græða sem mest á húsnæðisþörf almennings, bröskurum sem leggja svo mikið á nýbyggðar íbúðir að þær eru seldar á tvöföldum byggingarkostnaði, jafnvel meira. Og á hina höndina eru leigufyrirtækin sem þurrkuðu upp íbúðir sem almenningur missti í Hruninu og sem fyrirtækin leigja almenningi síðan til baka gegn okurleigu,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir að staðan nú minni á ömurleika nítjándu aldar. „Við erum því komin aftur á Dickeníska tíma í húsnæðismálum á Íslandi, að draumaveröld nýfrjálshyggjunnar, þar sem búið er að brjóta niður varnir almennings frá síðustu öld gegn blóðþyrstum kapítalisma sem engum reglum þarf að hlýta og sem getur náð undir sig öllum geirum samfélagsins. Líka stjórnmálunum með mútum, eins og dæmin sanna,“ segir Gunnar Smári.

Ekki klókt að skipuleggja eggjabú með minkum

Hann segist þó vita um lausn við þessu. „Hver er lausnin? Hún er að hrekja kapítalistana út af húsnæðismarkaði. Þeir hafa þar ekkert að gera. Húsnæðiskerfið er vél sem á að skila almenningi eins öruggu húsnæði og mögulegt er, eins ódýru og mögulegt er og eins góðu og mögulegt er. Kapítalisminn gerir ekkert að þessu. Hann okrar, skapar óöryggi og skilar vondri vöru sem enginn vill. Húsnæðiskerfið verður ekki lagað með kapítalistum, ekki frekar en klókt sé að skipuleggja eggjabú með minkum,“ segir Gunnar Smári og heldur áfram:

„Hið opinbera, ríki og sveitarfélög verða að byggja upp félagslegt húsnæðiskerfi sem tekur yfir 10% markaðarins strax, síðan 20%, þá 30%, svo 40% og síðan 50% á eins fáum árum og mögulegt er. Þegar þangað er komið getum við dregið andann og velt fyrir okkur hvort við eigum að halda lengra og hvort sömu aðferðir henti restinni af markaðnum.“

No brainer

Gunnar Smári segir að til að þetta geti gerst þurfi að hreinsa til á Alþingi. „En til þess að geta gert þetta, að losna við braskara, okrara og spákaupmenn, út af húsnæðismarkaðnum, þurfum við fyrst að losna við fulltrúa þessa liðs út af hinum lýðræðislega vettvangi. Þar með talið núverandi ríkisstjórn og svo til allan þingheim og núverandi meirihluta í borgarstjórn og svo til öllum stærri sveitarfélögum. Þau sem hafa allan sinn feril þjónustað auðvaldið eru ekki að fara að hætta því af því bara og allt í einu. Við þurfum að setja þjóna almennings í það hlutverk að þjóna almenningi,“ segir Gunnar Smári.

Hann segir þetta segja sig sjálft. „Lausnin á húsnæðiskerfinu er ekki tæknileg, ekki fjárhagsleg, ekki lögfræðileg og ekki verkfræðileg. Hún er pólitísk. Fólkið þarf að taka völdin svo að kerfið þjóni fólkinu. Það er no brainer“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar sáir efasemdum um orð Trump

Yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar sáir efasemdum um orð Trump
Fréttir
Í gær

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“

Hraunað yfir Gunnar Smára og allt á suðupunkti hjá sósíalistum – „Þetta er svo vitlaust að það er bara hlægilegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“

Kona sem flýði blokkina í Írabakka eftir ónæði í sjö ár – „Ég kvartaði næstum daglega í Félagsbústaði“