fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Fréttir

Dauðaslys og mörg umferðaróhöpp í vikunni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 25. nóvember 2019 12:33

Lögreglan á Suðurlandi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á Suðurlandi gerir upp liðna viku með tilliti til umferðaróhappa og annarra tilvika tengdum akstri. Eins og áður kom fram í fréttum varð dauðaslys í Hornafirði þann 21. nóvember er ekið var á gangandi vegfaranda á þjóðvegi 1. Maðurinn, sem var aldraður, lét lífið, en málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.

Fjórtán önnur umferðaróhöpp urðu í umdæminu í vikunni en þau voru öll án alvarlegra meiðsla. Sjúkraflutningsmenn sem unnu á slysavettvangi undir Eyjafjöllum þann 19. nóvember þegar rúta fauk þar út af vegi slösuðust þegar vindhviða skellti þeim flötum á veginum. Þeir luku vinnu sinni á vettvangi en meiðslin eru ekki alvarleg. Lögreglumaður sem var utan við veginn fauk um 200 metra leið, en slasaðist ekki.

Vegfarandi um Skeiðarársand þann 20. nóvember tók upp myndskeið af ökumanni jepplings sem gerði sér að leik að aka í hringi utan vegar á sandinum.  Myndskeiðið sendi hann lögreglu og reyndist unnt að ná á viðkomandi ökumann og yfirheyra um málsatvik. Sá lauk málinu með því að greiða 150 þúsund króna sekt fyrir brot sitt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Jóhanna segir Woke hafa náð tökum á skólunum: „Enginn fær verðlaun eða viðurkenningu fyrir dugnað eða elju“

Jóhanna segir Woke hafa náð tökum á skólunum: „Enginn fær verðlaun eða viðurkenningu fyrir dugnað eða elju“
Fréttir
Í gær

Egill segir átökin í Sósíalistaflokknum minna á Netflix-þátt um skemmtiferðaskip þar sem klósettin virkuðu ekki

Egill segir átökin í Sósíalistaflokknum minna á Netflix-þátt um skemmtiferðaskip þar sem klósettin virkuðu ekki
Fréttir
Í gær

Þórhallur vonsvikinn með borgina:  „Neikvætt er tekið í erindið“ 

Þórhallur vonsvikinn með borgina:  „Neikvætt er tekið í erindið“ 
Fréttir
Í gær

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“

Sverrir um ungu tæknitrúðana sem hanna gervigreind – „Þeir tala raunar eins og það sé þeim bókstaflega lífsspursmál að tortíma störfum fólks“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar

Er forseti Kína á útleið? – Hreinsanir sagðar hafnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump með svipuna á lofti – Rak þrjá saksóknara

Trump með svipuna á lofti – Rak þrjá saksóknara