fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Átakanleg saga í Vikunni: María var dauðvona þegar kennari spurði móður hennar viðbjóðslegrar spurningar

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 20. nóvember 2019 15:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar dóttir mín veiktist af sjúkdómi sem síðar dró hana til dauða sagði ókunnugur maður eina setningu við mig sem hefur lifað með mér síðan. Enn skil ég ekki tilgang mannsins og mun eflaust aldrei gera það.“

Svona hefst lífsreynslusaga konu en frásögnin hennar birtist í Vikunni. Elsta barnið hennar, María, fékk krabbamein þegar hún var einungis sjö ára gömul og þurfti oft að sleppa skóla vegna veikindanna.

„Skólastjóranum fannst slæmt hvað hún missti mikið úr námi og vildi að hún fengi heimakennslu. Á þessum tíma vorum við vongóð um að Maríu batnaði og þá var mikilvægt að hún héldi í við skólafélagana.“

Hræðileg orð frá kennaranum

Nýútskrifaður kennari mætti á vegum skólans til að kenna Maríu á heimilli hennar. „Hann var þybbinn, man ég, og virtist ágætur,“ segir móðirin í Vikunni. Hún segir að fyrsta skiptið hjá kennaranum hafi gengið vel en eftir annað skiptið var sagan önnur. Þegar móðirin fylgdi honum til dyra kom maðurinn henni í opna skjöldu. „Mikið hlýtur þú að vera vond manneskja fyrst barnið þitt fékk krabbamein,“ sagði hann við hana.

„Ég starði á manninn, kom ekki upp orði en opnaði dyrnar og hleypti honum út. Síðan gekk ég beint að símanum og hringdi í skólann. Eftir smábið fékk ég samband við skólastjórann og sagði honum hvað hefði gerst. Enn skil ég ekki hvers vegna ég brotnaði ekki niður þarna en mér hefur alltaf gengið vel að halda ró minni á erfiðum stundum. Skólastjórinn varð miður sín og lofaði því að þessi maður kæmi aldrei framar inn fyrir mínar dyr, það kæmi einhver annar.“

Móðirin segir að kannski hafi þetta verið illa orðuð samúðarorð hjá kennaranum. „Mér datt líka í hug að hann væri ofsatrúar, syndir feðranna og allt það, en setningin hljómaði lengi í eyrum mér og mér hefur aldrei tekist að gleyma henni,“ segir móðirin síðan. Hún segist ekki muna nafn mannsins og hún myndi ekki þekkja hann á götu en hún getur séð útlínur hans fyrir sér þar sem hann stóð við dyrnar og sagði þetta.

„Ég ásakaði mig samt fyrir að vera vond móðir“

Maríu batnaði síðan og gat farið aftur í skólann í kjölfarið. Veikindin tóku sig upp og þannig gekk þetta næstu árin. „Ég breyttist mikið á þessum tíma og næmni mín jókst,“ segir móðir Maríu.

„Einn daginn var ég ofboðslega kvíðin og eirðarlaus þar sem ég sat við sjúkrabeð Maríu, eitthvað slæmt var í aðsigi. Svo birtist maðurinn minn á spítalanum alvarlegur á svip og sagði mér að níu ára sonur okkar hefði dottið af bílskúrsþakinu heima við leik með vinum sínum. Hann hefði slasast mikið, væri illa brotinn en ekki í lífshættu,“ sagði móðirin. Nú átti hún tvö börn á spítala en á þessum tíma var María orðin ellefu ára gömul. María var orðin svo veik að móðir hennar vissi að hún kæmi ekki aftur heim.

„Stundum rifjaðist upp setningin sem kennarinn sagði við mig og ég fylltist alltaf sjálfsásökun. Ég gat að vísu ekki verndað dóttur mína fyrir krabbameininu en kannski hefði ég getað komið í veg fyrir að sonur minn dytti af þakinu, ef ég hefði verið heima en ekki á spítalanum hjá Maríu. Ég ásakaði mig samt fyrir að vera vond móðir sem gat ekki passað börnin sín. Næstu vikur voru erfiðar, bæði börnin þurftu mikið á mér að halda. Maðurinn minn vann fulla vinnu og sá um yngsta barnið en stundum kom hann því í pössun og stóð vaktina með mér. Hann hefur alla tíð staðið eins og klettur við hliðina á mér og ég hef einnig reynt að vera honum styrkur.“

„Næsta dag lést María í faðmi okkar foreldranna“

Einn daginn bað hún manninn sinn um að vera hjá þeim yfir nóttina og fram á næsta dag, því María átti eftir að deyja daginn eftir. „Það var ekkert sem læknarnir höfðu sagt eða gefið í skyn og ástand hennar hafði ekki breyst frá því hvernig það var en ég bara vissi það,“ segir móðirin.

„Síðdegis næsta dag lést María í faðmi okkar foreldranna. Henni hafði versnað mikið upp úr hádegi og okkur voru ekki gefnar vonir um að nokkuð breyttist. Við vorum viðbúin en samt ekki. Það er ekki hægt að vera viðbúin því að missa barnið sitt.“

Nú einbeittu foreldrarnir sér að syni þeirra en áður höfðu þau skipt tímanum sínum á milli systkinanna eftir því sem þau best gátu. Sonur þeirra lá í margar vikur á sjúkrahúsinu eftir slysið og þrátt fyrir að læknarnir hafi unnið kraftaverk þá stingur hann enn við, rúmum þrjátíu árum seinna. „Þessi tími er í móðu hjá mér en ég man samt eftir gleðinni þegar drengurinn gat gengið hjálparlaust á nýjan leik,“ segir hún.

„Hei, varst þú ekki að jarða barnið þitt?“

Eftir að dóttir þeirra lést liðu mánuðirnir. Bati sonar þeirra var hægur en þó jafn og glöddust þau yfir því. „Söknuðurinn eftir dóttur okkar var mikill en við þurftum að standa okkur fyrir yngri börnin, það var mikilvægast,“ segir móðirin.

Einn daginn kom systir hennar með tvo miða á skemmtun sem haldin var á vinsælum skemmtistað. Hjónunum langaði ekkert að fara en systir móðurinnar náði að tala þau til. Hún sagði að þau hefðu gott af því að skipta um umhverfi þótt það væri ekki nema í eina kvöldstund, hún gæti passað börnin fyrir þau á meðan.

„Veikindi barnanna höfðu haft slæm áhrif á fjárhaginn svo við hefðum aldrei leyft okkur eitthvað svona. Ég hafði ekkert getað unnið í nokkur ár og maðurinn minn var ekki í hálaunastarfi. Eitthvað varð ég samt vör við að fólk héldi að við hefðum fengið miklar bætur vegna barnanna en svo var sannarlega ekki. Það tók okkur mörg ár að vinna okkur út úr þeim skuldum sem söfnuðust upp – og þó var þjónusta í heilbrigðiskerfinu ókeypis á þeim tíma.“

Þau fóru á skemmtistaðinn en ákváðu að fá sér ekki vín, þau vildi ekki vekja upp sárar tilfinningar. Auk þess fólst ákveðið öryggi í því að geta komist heim hvenær sem er og þurfa ekki að reiða sig á leigubíl.

„Þetta virtist ætla að verða góð kvöldstund, betri en við höfðum þorað að vona. Það þurfti samt ekki meira til en vanhugsuð orð drukkins manns til að eyðileggja allt. Þetta var gamall samstarfsmaður mannsins míns. Hann horfði á okkur og sagði svo við manninn minn: „Hei, varst þú ekki að jarða barnið þitt? Og bara kominn strax á djammið?“ Hvorugt okkar sagði nokkuð við manninn og hann ætlaðist kannski ekki til þess. Við flýttum okkur heim og þetta sat lengi í mér.“

„Þetta á eftir að verða svo miklu, miklu verra hjá þér“

Móðirin segir síðan frá því þegar vinkona hennar missti barnið sitt í slysi en ýmsir hlutir höfðu einnig sært hana eða angrað í sorgarferlinu. „Indæl eldri kona sem vann hjá kirkjunni kvaddi hana eftir erfidrykkjuna með því að segja: „Komdu til okkar hvenær sem þú þarft að tala …“ og bætti við; „þetta á eftir að verða svo miklu, miklu verra hjá þér.“ Ekki upplífgandi kveðjuorð, fannst vinkonu minni,“ segir hún.

Hún endar söguna með því að benda á að fólk syrgir á mismunandi hátt, það er ekki til nein uppskrift að sorg. „Líf mitt er gott og margt að gleðjast yfir en mér finnst ég verða að koma þessari sögu frá mér, þótt ekki sé nema til þess að reyna að vekja skilning á því hversu mikil áhrif orð geta haft. Stundum er betra að segja minna, faðma frekar og styrkja með nærveru,“ segir hún í lokin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“

Snorri og Patrik vekja hneykslun: Konan hugsi um börnin og karlinn um peningana – „Gömlukallaraus í ungum mönnum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik

Þetta er umfjöllunin sem María Sigrún fékk ekki birta í Kveik
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt

Kári Hansen skilaði inn meðmælum til forseta Íslands rafrænt
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni

Löggan fellir niður sektir á þá sem voru gómaðir á nagladekkjum í vikunni