fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Fréttir

Svona hefur saga nýjasta atvinnumanns Íslands verið: Sá fyrsti af Seltjarnarnesi í atvinnumennsku

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 5. nóvember 2019 13:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orri Steinn Óskarsson var í dag staðfestur sem nýr leikmaður FCK. Knattspyrnudeild Gróttu hafa gert samkomulag við danska stórliðið FC Kaupmannahöfn um að Orri Steinn gangi til liðs við U17 ára lið félagsins sumarið 2020. Þetta kemur fram í ítarlegri frétt á heimasíðu Gróttu.

Orri verður því fyrsti leikmaður Gróttu sem erlent atvinnumannalið fær til sín frá félaginu. Þetta er mikill áfangi fyrir þennan efnilega leikmann og ekki síður tímamót fyrir knattspyrnudeild Gróttu.

Orri Steinn er fæddur og uppalinn á Seltjarnarnesi og byrjaði að æfa fótbolta hjá Gróttu 6 ára gamall. Hann hefur verið undir handleiðslu margra þjálfara hjá Gróttu en helst ber þó að nefna Óskar Hrafn Þorvaldsson, föður Orra, sem hóf störf hjá Gróttu haustið 2015. Óskar þjálfaði Orra Stein í 4. og 3. flokki, og síðar í meistaraflokki, en í fyrra stýrði Óskar 3. flokki Gróttu í undanúrslit Íslandsmótsins þar sem Orri var lykilmaður.

Í fyrra varð Orri yngsti leikmaðurinn til að spila með meistaraflokki Gróttu þegar hann kom inn á í 2. deildinni á móti Hetti og gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk. Orri var þá 13 ára og 354 daga gamall en metið átti Daði Már Jóhannsson sem var 14 ára og 330 daga gamall þegar hann lék með meistaraflokki.

Frá leiknum eftirminnilega við Hött hefur Orri spilað 17 leiki með meistaraflokki og skorað í þeim fjögur mörk. Hann skoraði einmitt fyrsta mark Gróttu í 4-0 sigrinum á Haukum í lokaleik sumarsins 2019 þegar Grótta tryggði sér sigur í Inkasso-deildinni. Orri tók þátt í meira en helmingi leikjanna í Inkasso-ævintýrinu í sumar en Óskar Hrafn þjálfaði liðið ásamt Halldóri Árnasyni.

Orri Steinn hefur látið að sér kveða í yngri landsliðum Íslands síðustu tvö ár og hefur nú leikið 13 landsleiki og skorað í þeim 16 mörk! Orri er nýkominn heim úr ferð með U17 ára landsliðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Íris Líf í samstarf við stórt íslenskt fyrirtæki – Afar ánægð með að þeir prúttuðu niður samninginn

Íris Líf í samstarf við stórt íslenskt fyrirtæki – Afar ánægð með að þeir prúttuðu niður samninginn
Fréttir
Í gær

Landsréttur slær á putta héraðsdóms – Mál óprúttins vörubílstjóra sem keyrði á lögreglubifreið fer fyrir dóm

Landsréttur slær á putta héraðsdóms – Mál óprúttins vörubílstjóra sem keyrði á lögreglubifreið fer fyrir dóm
Fréttir
Í gær

Dæmd sek fyrir að hafa myrt tengdaforeldra sína með eitruðum sveppum

Dæmd sek fyrir að hafa myrt tengdaforeldra sína með eitruðum sveppum
Fréttir
Í gær

Fullyrða að Epstein hafi ekki haldið skrá yfir fræga viðskiptavini og ætla ekki að birta nein gögn

Fullyrða að Epstein hafi ekki haldið skrá yfir fræga viðskiptavini og ætla ekki að birta nein gögn
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Angist í Texas – 24 látnir og 23 stúlkna enn saknað

Angist í Texas – 24 látnir og 23 stúlkna enn saknað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ástþór í hatrömmum deilum við meintan svikahrapp vegna gluggaviðskipta – Skrautlegar ófrægingarherferðir á báða bóga

Ástþór í hatrömmum deilum við meintan svikahrapp vegna gluggaviðskipta – Skrautlegar ófrægingarherferðir á báða bóga