fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
Fréttir

Tólf leiguíbúðir reistar á þremur dögum í Hafnarfirði

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 31. október 2019 15:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tólf leiguíbúðir rísa hratt á tveimur lóðum við Hádegisskarð í Skarðshlíð í Hafnarfirði þessa dagana. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ kemur fram að fyrstu íbúðinni hafi verið komið fyrir í gær og er gert ráð fyrir að íbúðirnar tólf verði komnar á sinn stað í vikulok. Hafnarfjarðarbær fær íbúðirnar afhentar fullbúnar um miðjan nóvember.

Þessum leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að öruggu húsnæði í langtímaleigu. Skarðshlíð íbúðarfélag hses og Modulus eignarhaldsfélag gerðu með sér samning um uppbyggingu á 12 íbúðum á lóðunum Hádegisskarð 12 og 16 í Skarðshlíð í maí á síðasta ári. Stofnaðili Skarðshlíðar íbúðarfélags hses. er Hafnarfjarðarbær og er hugmyndafræðin til framtíðar að íbúar sjái sjálfir um stjórn og rekstur félagsins.

Sex íbúðir eru á hvorri lóð og mun húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðarbæjar fá tvær íbúðir af þessum tólf í félagslegt húsnæðiskerfi sveitarfélagsins.

„Með þessari framkvæmd erum við að fara nýjar leiðir í þjónustu og verkefnum sveitarfélags til að koma betur til móts við íbúa. Í þessu tilviki er verið að leita leiða fyrir þá sem eru á mörkum þess að vera of tekjuháir fyrir félagslegt húsnæði en samt með of lágar tekjur fyrir hinn almenna leigumarkað. Hérna er verið að bjóða upp á varanlegt húsnæði á mun betra verði en gengur og gerist á markaðnum í dag. Til framtíðar gerum við ráð fyrir að reksturinn verði að fullu sjálfbær og ef vel tekst til þá ætti verkefnið að vera öðrum sveitarfélögum, félagasamtökum og verktökum hvatning til sambærilegra framkvæmda. Við reiknum með að fyrstu íbúarnir flytji inn strax 1. desember“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur um íbúðir rennur út 10. nóvember.

Skarðshlíð íbúðarfélag hses er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarsjónarmiða sem stofnuð var af Hafnarfjarðarbæ. Félagið hefur þann tilgang að byggja eða kaupa, eiga eða hafa umsjón með rekstri og viðhaldi almennra íbúða og veita þjónustu í almannaþágu samkvæmt lögum um almennar íbúðir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sara var endurlífguð á bensínstöðvarplani – „Til stóð að skrá niður dánarstund en til allrar lukku var ákveðið að reyna aðeins lengur“

Sara var endurlífguð á bensínstöðvarplani – „Til stóð að skrá niður dánarstund en til allrar lukku var ákveðið að reyna aðeins lengur“
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Segir orð Jens Garðars um ermi eftir gott kökupartý ekkert grín og lýsa vanþekkingu

Segir orð Jens Garðars um ermi eftir gott kökupartý ekkert grín og lýsa vanþekkingu
Fréttir
Í gær

Hlaut marga yfirborðsáverka á höfði eftir líkamsárás á bílastæði Hagkaups

Hlaut marga yfirborðsáverka á höfði eftir líkamsárás á bílastæði Hagkaups
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Hvenær hættir fólk að setja þetta illgjarna hrekkjusvín á einhvern verðlaunapall?“

„Hvenær hættir fólk að setja þetta illgjarna hrekkjusvín á einhvern verðlaunapall?“