fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
Fréttir

Sjö réttargæslumenn stíga fram: „Maður fær hærri bætur fyrir ólögmæta uppsögn en kona sem er nauðgað hrottalega“ – Þessu verður að breyta!

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 31. október 2019 14:16

Mynd úr safni og tengist frétt ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjö íslenskir lögmenn, sem allir eru réttargæslumenn neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis, kalla eftir því að miskabætur til handa brotaþolum í kynferðisbrotamálum verði teknar til endurskoðunar.

Lögmennirnir standa saman að grein sem birtist á Vísi í dag, en þeir eru Kolbrún Garðardsóttir, Ólöf Heiða Guðmundsdóttir, Inga Lillý Brynjólfsdóttir, Sigurður Freyr Sigurðsson, Valgerður Valdimarsdóttir, Margrét Gunnlaugsdóttir og Gunnhildur Pétursdóttir.

Fengu ekki starf og fengu 700 þúsund í miskabætur

Í grein sinni fjalla þau um nokkra dóma sem fallið hafa á árunum 2017 til 2019 þar sem miskabætur hafa verið dæmdar.

Benda þau til dæmis á mál Atla Rafns Sigurðarsonar sem voru dæmdar 1,5 milljónir króna í miskabætur vegna uppsagnar í Borgarleikhúsinu. Þá benda þau á annað mál þar sem íslenska ríkinu var gert að greiða tveimur mönnum miskabætur í máli þar sem ráðherra leit fram hjá þessum umsækjendum til að gegna störfum dómara við Landsrétt. Mönnunum voru dæmdar 700 þúsund krónur í miskabætur vegna ófjárhagslegs tjóns þeirra, en Hæstiréttur taldi að ráðherranum hefði mátt vera ljóst að ákvörðun hennar gæti bitnað á orðspori umsækjendanna og orðið þeim að meini og vegið að persónu þeirra og æru.

Barnabarnið fékk 1,7 milljónir króna

Í grein sinni nefna þau einnig nauðgunarmál, til dæmis mál konu sem kærði tvo karlmenn fyrir nauðgun og krafðist miskabóta.

„Mennirnir voru sakfelldir á báðum dómstigum og viðurkennt er að brotin hafi verið alvarleg og haft alvarlegar afleiðingar fyrir brotaþola sem hafi verið í sálfræðimeðferð vegna áfallastreituröskunar frá því að brotin áttu sér stað og að hún hafi einangrað sig félagslega, átt erfitt með að vera í kringum fólk og treysta fólki. Miskabætur til handa brotaþola þóttu hæfilega ákvarðaðar 1.millj kr. í miskabætur úr hendi hvors sakfellda um sig vegna hennar ófjárhagslega tjóns.“

Þá nefna þau annað mál um mann sem var dæmdur fyrir nauðgun og önnur kynferðisbrot gagnvart barnabarni sínu á þriggja ára tímabili, frá því að drengurinn var níu ára.

„Þegar málið var dómtekið hafði barnið farið í rúmlega 50 viðtöl í Barnahúsi og var drengurinn greindur með áfallastreituröskun. Hann upplifði jafnframt mikla skömm og sálarangist þar sem sakfelldi var nákominn honum. Einnig var um að ræða brot karlmanns á ungum dreng sem reynist oft erfitt að meðhöndla samkvæmt sálfræðingi Barnahúss. Fram kom að erfitt væri að segja til um afleiðingar brotanna á líðan brotaþola til framtíðar en að öllum líkindum þyrfti hann á áframhaldandi meðferð að halda um óákveðinn tíma. Miskabætur til handa brotaþola þóttu hæfilega ákvarðaðar 1,7 millj. kr. vegna hans ófjárhagslega tjóns.“

„Þessu verður að breyta!“

Lögmennirnir ítreka að dómarnir sem hér um ræðir hafi fallið á árunum 2017 til 2019 og byggja á því að rétt hafi verið að láta þann sem ábyrgð bar á ólögmætri meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu annars manns, greiða miskabætur.

Þá koma þau að aðalatriðinu:

„Maður fær hærri miskabætur fyrir ólögmæta uppsögn en kona sem er nauðgað hrottalega. Barn fær aðeins helmingi hærri miskabætur fyrir áralöng kynferðisbrot en menn sem fengu ekki vinnuna sem þeir sóttu um. Þá hlýtur stóra spurningin að vera þessi: Er það mat dómstóla að æra og persóna aðila sem missa atvinnu sé meira virði en frelsi, friður, æra eða persóna þess sem brotið er á kynferðislega?“

Í lok greinarinnar segir að þeir réttargæslumenn sem standa að þessari hugleiðingu telji ótækt að miskabætur til handa brotaþolum í kynferðisbrotamálum séu eins lágar og raun ber vitni. „Þessu verður að breyta!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður ber Auðunn saman við Jesú Krist og segir áhrif hans ekki leyna sér – „Árið er 45 E.AB“

Sigurður ber Auðunn saman við Jesú Krist og segir áhrif hans ekki leyna sér – „Árið er 45 E.AB“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Segir Bjarna hafa mokað peningum til einkafyrirtækja með gríðarlegum skattaafslætti

Segir Bjarna hafa mokað peningum til einkafyrirtækja með gríðarlegum skattaafslætti
Fréttir
Í gær

Landsréttur slær á putta héraðsdóms – Mál óprúttins vörubílstjóra sem keyrði á lögreglubifreið fer fyrir dóm

Landsréttur slær á putta héraðsdóms – Mál óprúttins vörubílstjóra sem keyrði á lögreglubifreið fer fyrir dóm
Fréttir
Í gær

Fastus vann stærsta sjúkrabílaútboð á Íslandi

Fastus vann stærsta sjúkrabílaútboð á Íslandi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullyrða að Epstein hafi ekki haldið skrá yfir fræga viðskiptavini og ætla ekki að birta nein gögn

Fullyrða að Epstein hafi ekki haldið skrá yfir fræga viðskiptavini og ætla ekki að birta nein gögn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjórir sem höfðu samræði við þroskaskerta konu sleppa við ákæru

Fjórir sem höfðu samræði við þroskaskerta konu sleppa við ákæru