fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
433Sport

Óttaðist að blaðamaður Morgunblaðsins hefði smitað mikilvæga landsliðsmenn: „Þjáðist af al­var­legri upp-og-niður-veiki“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 22. október 2019 08:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bjarni Helgason, vélbyssukjafturinn á Morgunblaðinu skrifar skemmtilegan bakvörð í blað dagsins. Þar ræðir hann um samstarsfélaga sinn sem fór veikur heim.

Blaðamaðurinn er ekki nefndur á nafn en sá hafði verið að ræða við mikilvæga landsliðsmenn sama dag og hann fór heim veikur. ,,Ég verð ekki oft veik­ur. Sér­stak­lega ekki í seinni tíð. Það ger­ist nán­ast aldrei. Koll­egi minn á íþrótta­deild Morg­un­blaðsins mætti gal­vask­ur til leiks á mánu­degi fyr­ir ekki svo löngu. Hann var all­ur hinn hress­asti þegar ég kvaddi hann rétt fyr­ir há­degi til þess að fara á blaðamanna­fund hjá KKÍ. Þegar ég kom svo til baka þá var allt annað hljóð í mann­in­um, skrifar Bjarni í blað dagsins.

Félagi Bjarna hafði orðið slappur á meðann hann brá sér af bæ, hann fór fljótlega heim með upp og niðurgang.

,,Ég mætti hon­um í mat­saln­um þar sem hann starði á gólfið. Þegar ég spurðu hann hvort hann væri ekki í góðu lagi þá stundi hann því upp úr sér að hann væri eitt­hvað slapp­ur. Skemmst er frá því að segja að hann sagði ekki orð við mig það sem eft­ir lifði dags, eða allt þangað til hann fór æl­andi á kló­settið, klukku­tíma síðar og svo beint heim á bedd­ann.“

Atvikið átti sér stað nokkru fyrir leik karlalandsliðsins í fótbolta gegn Frakklandi, þar hafði veiki blaðamaðurinn rætt við tvo landsliðsmenn.“

,,Koll­egi minn þjáðist af al­var­legri upp-og-niður-veiki. Það heyrðist ekki mikið í hon­um næstu daga. Það eins sem komst að hjá mér var hins veg­ar sú staðreynd að dag­inn sem hann fór veik­ur heim tók hann viðtöl við bæði Al­freð Finn­boga­son og Jó­hann Berg Guðmunds­son, landsliðsmenn í knatt­spyrnu, sem voru á leið inn í mik­il­væg­an leik gegn heims­meist­ur­um Frakka á föstu­deg­in­um.“

Bjarna stóð ekki á sama og hélt að Jóhann og Alfreð myndu fá þessa svæsnu kveisu.

,,Ég var með þetta á heil­an­um alla vik­una og beið eft­ir frétt­um úr her­búðum landsliðsins um að Al­freð og Jó­hann væru með svæsna maga­k­veisu. Það var þungu fargi af mér létt þegar Erik Hamrén til­kynnti að all­ir leik­menn liðsins væru heil­ir heilsu á blaðamann­fundi dag­inn fyr­ir leik. Ég vaknaði svo fersk­ur á föstu­deg­in­um, meira en til­bú­inn í lands­leik­inn á Laug­ar­dals­velli. Ég endaði hins veg­ar á því að fara veik­ur heim upp úr há­degi með upp-og-niður-veik­ina.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina

Verðandi stjóri Liverpool minnir hann á goðsögnina
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Byrjunarlið Aston Villa og Chelsea – Palmer mættur aftur

Byrjunarlið Aston Villa og Chelsea – Palmer mættur aftur
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Enn og aftur orðaður við brottför – Hafa harðneitað að hann sé til sölu

Enn og aftur orðaður við brottför – Hafa harðneitað að hann sé til sölu
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni

Sjáðu myndbandið umtalaða – Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

England: Liverpool mistókst að vinna West Ham

England: Liverpool mistókst að vinna West Ham
433Sport
Í gær

Þetta er upphæðin sem Liverpool greiðir fyrir Slot

Þetta er upphæðin sem Liverpool greiðir fyrir Slot
433Sport
Í gær

Treyju Manchester United fyrir næsta tímabil lekið og stuðningsmenn eru gáttaðir

Treyju Manchester United fyrir næsta tímabil lekið og stuðningsmenn eru gáttaðir