fbpx
Miðvikudagur 26.nóvember 2025
Fréttir

Harmleikurinn í Mehamn: Réttarhöld yfir Gunnari hefjast 2. desember – Heiða aldrei sannfærðari en nú um að þetta hafi verið slys

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 6. október 2019 16:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég heyrði í Gunnari í síma áðan og það er þokkalegt hljóð í honum. Hann er edrú og hefur verið það frá handtöku, og er orðinn einskonar verkstjóri á ganginum. Hann tekur að sér alla vinnu sem býðst. Andlega er hann sterkari en hann var en áður grét hann bara og grét. Ég næ að fá hann til að hlæja af og til,“ segir Heiðar Þórðar, hálfsystir Gunnars Jóhanns Gunnarssonar sem varð bróður sínum, Gísla Þór Þórarinssyni, að bana, þann 27. apríl, í smábænum Mehamn í Finnmörku í Norður-Noregi. Gunnar situr í gæsluvarðhaldi í Noregi fram að réttarhöldunum sem verða 2. desember.

Gunnar skaut Gísla í lærið með þeim afleiðingum að honum blæddi út. Þó að Gunnar hafi komið heim til Gísla vopnaður rifli og orðið sér út um skotvopnið skömmu áður telur Heiða að hann hafi ekki ætlað að bana bróður sínum. Hið sama mátti lesa í örvæntingarfullri Facebook-færslu Gunnars rétt eftir voðaverkið.

Vinslit urðu milli bræðranna eftir að Gísli tók upp samband við eiginkonu og barnsmóður Gunnars. Áður voru þeir bestu vinir. Um þetta leyti voru  Gunnar og kona hans nýskilin en hann stóð í þeirri trú að þau tækju saman aftur og fór meðal annars í áfengismeðferð í von um að ná að endurvekja sambandið. Þess má geta að Gísli og eiginkona Gunnars bjuggu ekki saman, svo langt hafði samband þeirra ekki náð.

„Alla þeirra tíð voru þeir mjög nánir. Gísli og Gunni voru bestu vinir þar til þetta kom upp með samband Gísla við konu Gunnars. Gunni virkaði oft einsog Prosac á Gísla því hann átti það til að vera þungur. Mjög ólíkir, Gunni hefur alla tíð verið vinmargur og vinsæll, alltaf kátur og hress hrókur alls fagnaðar. Elskar af öllu hjarta og gerir allt fyrir þá sem hann elskar. Hörkuduglegur líka,“ segir Heiða.

„Ég hef alla tíð trúað því að þetta hafi verið slys og núna er ég sannfærðari en nokkurn tíma fyrr,“ segir Heiða en hún telur sig búa yfir upplýsingum sem styðji enn frekar tilgátu um slys. Hún getur ekki veitt þær upplýsingar í augnablikinu en hugsanlega á næstunni.

Heiða flýgur til Noregs þann 1. desember og verður viðstödd réttarhöldin. Hugsanlegt er að hún verði kölluð til sem vitni við réttarhöldin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Jón ósáttur við gæludýralögin – „Þetta er gjaldið sem aðrir flokkar greiða fyrir að fá stuðning Ingu Sæland“

Jón ósáttur við gæludýralögin – „Þetta er gjaldið sem aðrir flokkar greiða fyrir að fá stuðning Ingu Sæland“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hamed í fimm ára fangelsi eftir hryllinginn við Skyggnisbraut – Hending ein að ekki hlaust mannsbani af

Hamed í fimm ára fangelsi eftir hryllinginn við Skyggnisbraut – Hending ein að ekki hlaust mannsbani af
Fréttir
Í gær

Atla Steini enn líkt við gervigreind – „Broslegt að sjá fólk ítrekað verða sér til skammar“

Atla Steini enn líkt við gervigreind – „Broslegt að sjá fólk ítrekað verða sér til skammar“
Fréttir
Í gær

Steinunn varpar ljósi á brjálæðislegt álag – „Staða sem á ekki að koma upp á sjúkrahúsi í velmegandi ríki árið 2025“

Steinunn varpar ljósi á brjálæðislegt álag – „Staða sem á ekki að koma upp á sjúkrahúsi í velmegandi ríki árið 2025“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmar tekur Guðrúnu á beinið: „Ég vona að hér tali Guðrún án mikillar ígrundunar”

Sigmar tekur Guðrúnu á beinið: „Ég vona að hér tali Guðrún án mikillar ígrundunar”
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir líkamsárásir í Mjódd staðfesta sinnuleysi borgarinnar

Segir líkamsárásir í Mjódd staðfesta sinnuleysi borgarinnar