fbpx
Laugardagur 19.júlí 2025
Fréttir

Gonzaga fékk skilorðsbundinn dóm – Líf Óskars verður aldrei eins

Ritstjórn DV
Föstudaginn 27. september 2019 14:37

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Giovanni Vejerano Gonzaga, bandarískan ríkisborgara, í þriggja mánaða fangelsi vegna umferðarslyss á Reykjanesbraut í apríl 2018. Óskar Aðils Kemp slasaðist alvarlega þegar Gonzaga ók bifreið sinni á aðra bifreið sem kastaðist á Óskar.

Dómur féll í héraðsdómi í dag.

Slysið átti sér stað þann 28. apríl á Reykjanesbraut, til móts við Tjarnarvelli í Hafnarfirði. Þar hafði myndast umferðaröngþveiti vegna þess að fótbolti hafði skoppað út á götu. Óskar var þarna á ferðinni ásamt tveimur dætrum sínum. Óskar stöðvaði bíl sinn, gaf öðrum merki um að stöðva og fjarlægði boltann af götunni.

Næstur honum var maður að nafni Rúnar Jón Hermannsson. Skyndilega kom Gonzaga á miklum hraða og ók á bíl Rúnars sem við það hentist utan í Óskar. Bandaríski ferðamaðurinn og Rúnar Jón slösuðust lítillega en Óskar mun aldrei bera þess bætur sem hann lenti í þarna og um tíma var honum ekki hugað líf. Dætur hans sluppu ómeiddar.

Ítarlega var fjallað um málið í þættinum Kveikur á RÚV í apríl síðastliðnum.

Gonzaga var gefið að sök að hafa ekið bifreið sinni með of stuttu bili á milli ökutækja og án nægjanlegrar aðgæslu og varúðar aftan á bifreið Rúnars.

Gonzaga neitaði sök þegar málið var þingfest í maí síðastliðnum. Hann sagði við lögreglu eftir slysið hafa ekið á um 85 kílómetra hraða þegar bifreið fyrir framan hans hemlaði snögglega.

Í niðurstöðu dómsins kom fram að bifreið Gonzaga hafi verið á 91 til 101 kílómetra hraða þegar slysið varð. Í aðdraganda árekstursins beygði hann hvorki né hemlaði og var fótur hans á inngjafarpedala þar til árekstur varð, að því er segir í svokallaðri EDR-skýrslu sem unnin var. Draga mætti þá ályktun á ökumaðurinn hafi annað hvort verið sofandi við stýrið eða ekki með hugann við aksturinn þegar áreksturinn varð.

Í niðurstöðu dómsins segir:

„Ljóst þykir því að ákærði, sem ók litlum bíl í umrætt sinn, af gerðinni KIA RIO, næst  á eftir hestakerrunni, gat tæpast séð nokkuð til umferðar eða aðstæðna að öðru leyti á veginum fyrir framan kerruna, enda sagði hann sjálfur að kerran hefði verið stór og  byrgt  honum  sýn  fyrir  umferð  um  veginn.  Við  þær  aðstæður  bar  ákærða  að  gæta  sérstakrar  aðgæslu  og  varúðar  og  gæta  þess  að  hafa  nægilegt  bil  á  milli  ökutækja  þannig  að  hann  gæti  í  tíma  brugðist  við  aðstæðum  eins  og  hér  háttaði  til.  Að  áliti dómsins, byggt á framburði þeirra vitna sem gáfu skýrslu fyrir dóminum, svo og þeim  gögnum  sem  fyrir  liggja,  gætti  ákærði  þessa  ekki  og  sýndi  með  því  af  sér  gáleysi  í skilningi  219.  gr.  almennra  hegningarlaga  nr.  19/1940.  Er  háttsemi  hans  rétt  lýst  í ákæru  og  eru  brot  hans  þar  rétt  heimfærð  til  refsiákvæða.  Verður  ákærði  sakfelldur fyrir þá háttsemi.“

Fangelsisdómurinn yfir Gonzaga er skilorðsbundinn til tveggja ára. Auk þess var hann sviptur ökuréttindum í tólf mánuði og gert að greiða allan sakarkostnað málsins, alls rúmar 1,8 milljónir króna.

Óskar slasaðist sem fyrr segir alvarlega í slysinu en í umfjöllun Kveiks var meðal annars rætt við eiginkonu Óskars, Indu Hrönn Björnsdóttur.

„Hann þekkti ekki börnin sín, hann þekkti okkur ekki, mundi ekki eftir yngstu dóttur sinni og sagði: Hvaða strákur er þetta?“,“ sagði Linda. Á þeim tíma sem leið frá slysinu þar til umfjöllunin um málið var í apríl hafði Óskari þó farið fram. „Þetta er Óskar, en þetta er ekki sá Óskar sem við þekktum, þetta er annar Óskar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Fuglaáhugafólk hneykslað á Sveppa – „Greinilegt að fuglarnir þjást á meðan þeir kumpánar flissa og skemmta sér“

Fuglaáhugafólk hneykslað á Sveppa – „Greinilegt að fuglarnir þjást á meðan þeir kumpánar flissa og skemmta sér“
Fréttir
Í gær

Íslenskur raftónlistarmaður losnar ekki undan þýskum plötusamningi – „Passið ykkur áður en þið skrifið undir“

Íslenskur raftónlistarmaður losnar ekki undan þýskum plötusamningi – „Passið ykkur áður en þið skrifið undir“
Fréttir
Í gær

Doppumeistarinn er byrjaður á næsta verkefni – 570 uglur, ein fyrir hvern genginn kílómeter

Doppumeistarinn er byrjaður á næsta verkefni – 570 uglur, ein fyrir hvern genginn kílómeter
Fréttir
Í gær

Sláandi vendingar í Air India-slysinu: „Við teljum að þetta hafi verið sjálfsvíg flugstjórans“

Sláandi vendingar í Air India-slysinu: „Við teljum að þetta hafi verið sjálfsvíg flugstjórans“