fbpx
Sunnudagur 27.júlí 2025
Fréttir

Gunnar Smári sá Clinton: „Þannig sigrar hið illa, við gleymum okkur stundarkorn“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. september 2019 12:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og einn stofnenda Sósíalistaflokksins, minnist komu Bill Clintons til Íslands að tilefni heimsóknar Mike Pence í dag. Hann segir að það geti verið hættulegt að hrífast með þegar maður sér þekkta erlenda stjórnmálamenn á götu úti.

„Ég stóð á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis þegar ég sá Bill Clinton yfir öxlina á Baldvini Jónssyni, fyrrum auglýsingastjóra Moggans og þáverandi lambakjötssala í New York. Baldvin var að messa yfir mér hvað Bandaríkjamenn væru sólgnir í lambalæri og hvað mætti selja þeim mörg tonn ef ríkið væri til í að leigja einkaþotu undir lærin á leið vestur, málið væri að fljúga þeim vestur en ekki flytja þau frosin í skipi. Eða eitthvað svoleiðis. Ég var ekki að hlusta og var því fenginn þegar ég sá Clinton. Nei, sko, sagði ég við Baldvin, er þetta ekki Bill Clinton sem gengur þarna fram hjá Hressó?,“ lýsir Gunnar Smári.

Hann segist fyrst um sinn hafa fylgst með Clinton. „Baldvin leit við og sogaðist að Clinton eins og fjöldinn af fólki, hann gekk með strolluna á eftir sér og virtist halda uppi samtali við hvert og eitt. Ég hafði aldrei séð annað eins, skyldi ekkert hvernig maðurinn fór að þessu. En ég mátti ekki vera að því að stara á eitthvert frægðarmenni, mundi eftir því sem Mörður Árnason sagði mér, að hann stóð á gangstétt í Búkarest þegar óri kom í mannskapinn og fólk flykktist að gangstéttarbrúninni til að sjá betur bílalest sem ók fram hjá. Þetta var Nicolae Ceausescu á leið í vinnuna og fólkið veifaði. Og án þess að ná að hugsa var Mörður farinn að veifa líka, hann hreifst með,“ segir Gunnar Smári.

Hann setur þetta svo í samhengi við komu varaforseta Bandaríkjanna til Íslands. „Þannig sigrar hið illa, við gleymum okkur stundarkorn. Ég lét ekki freistast og hafði mig á brott. Clinton leiddi Baldvin og fylgdarlið sitt síðan út á Bæjarins bestu þar sem hann fékk sér pulsu með sinnepi. Annað man fólk ekki frá þessari heimsókn, ekki hvern Clinton hitti af ráðafólki og enn síður hvað þeim fór á milli. En í ljósi útgöngubanns og herlaga sem nú gilda í Reykjavík veltir maður fyrir sér hvað hafi breyst. Hvaða leikaraskapur er þetta eiginlega?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Varaþingmaður segir fjölmiðla og stjórnvöld hafa farið fram með offorsi – Ekki hættulegra að búa í Grindavík en víða annars staðar

Varaþingmaður segir fjölmiðla og stjórnvöld hafa farið fram með offorsi – Ekki hættulegra að búa í Grindavík en víða annars staðar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bandaríska vegabréfið aldrei jafn máttlaust og nú – Flest evrópsk vegabréf sterkari

Bandaríska vegabréfið aldrei jafn máttlaust og nú – Flest evrópsk vegabréf sterkari