fbpx
Þriðjudagur 29.júlí 2025
Fréttir

Einelti hefur langtímaáhrif

Auður Ösp
Fimmtudaginn 5. september 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saga Emils Jóns, sem svipti sig lífi í kjölfar eineltis og DV sagði frá í síðasta helgarblaði, er ekki einsdæmi og á undanförnum árum hafa ratað í fjölmiðla nokkrar frásagnir af ungmennum sem hafa framið sjálfsvíg í kjölfar eineltis.

Sjá einnig: Emil Jón svipti sig lífi í kjölfar eineltis – Fleygði sér fyrir lest nokkrum dögum fyrir 17 ára afmælisdaginn

Rannsóknir hafa sýnt fram á að afleiðingar eineltis geta haft langtímaáhrif á líf þolanda þess og mótað líf hans eftir að eineltinu lýkur. Í nýjum aðstæðum gæti þolandinn því enn upplifað höfnun og tortryggni þó svo að eineltinu sé lokið. Langtímaafleiðingar geta þó verið mismunandi og misalvarlegar. Sem dæmi um langtímaafleiðingar er bent á þunglyndi, kvíða, áfallastreituröskun og lágt sjálfstraust. Alvarlegasta afleiðing eineltis er svo sjálfsskaði eða sjálfsvíg. Þolendur eineltis geta því í langan tíma þurft að takast á við sálrænar afleiðingar sem geta hamlað þeim seinna í lífinu.

Þetta kemur meðal annars fram í lokaritgerð Önnu Karenar Ellertsdóttur við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, en ritgerðin fjallar um langtímaafleiðingar eineltis.

Svipti sig lífi 11 ára

Saga Dagbjarts Heiðar Arnarssonar vakti þjóðarathygli árið 2012. Dagbjartur var aðeins 11 ára þegar hann féll fyrir eigin hendi, þann 23. september 2011. Dagbjartur  var næstelstur fimm systkina en hann var fæddur með alvarlegan hjartagalla og glímdi einnig við ADHD og einhverfu. Hann var fórnarlamb eineltis alla sína skólagöngu og hafði gert nokkrar tilraunir til sjálfsvígs fyrir 11 ára aldur.

Foreldrar hans, Kaja Emilsdóttir og Arnar Helgason, stigu fram í viðtali í Kastljósi árið 2012, í þeim tilgangi að opna augu fólks fyrir þessu grafalvarlega samfélagsmeini.

Í febrúar 2017 ræddi Kaja einnig við DV. Þar kom meðal annars fram að Kaja hefði sannarlega orðið vör við þau miklu viðbrögð sem frásögn foreldra Dagbjarts hafði vakið. Taldi hún að mikið vatn hefði runnið til sjávar á undanförum árum hvað varðar eineltismál og umræðuna um sjálfsvíg, sem og aðstoð til aðstandenda.

„Ég held að þetta hafi að vissu leyti opnað augu fólks fyrir einelti og hversu mikil dauðans alvara það er. Mér finnst hafa orðið ákveðin vitundarvakning í kjölfarið á þessu, eins og fólk sé orðið meðvitaðra um vandann. Það er ekki lengur litið á þetta sem bara einhver „strákapör.“

„Takið utan um börnin ykkar og ræðið við þau“

Í nóvember 2017 birtist frétt á Vísi um að sextán ára stúlka á Húsavík hefði verið lögð í gróft einelti í átta ár. Líðan hennar varð svo slæm að hún reyndi hún að svipta sig lífi. Eftir það hélt hún samt enn áfram að fá ljót skilaboð og illkvittnar athugasemdir frá fólki úti á götu.

Foreldrar hennar, Sigrún Birna Árnadóttir og Almar Eggertsson, tjáðu sig um sjálfsvígstilraunina og eineltið á Facebook til þess að vekja bæjarbúa til umhugsunar.

Sigrún sagði dóttur sína hafa áður íhugað sjálfsvíg vegna eineltisins.

„Hún hefur einu sinni áður ætlað að gera þetta. Skrifaði okkur bréf og lögreglan fann hana uppi í fjalli hérna heima og talaði lengi við hana, hún vildi ekki lifa lengur.“

Þá brýndi Sigrún fyrir foreldrum að ræða við börnin sín um alvarleika og afleiðingar eineltis.

„Þau eru að upplifa alls konar, þau fá að heyra: „Oj, ekki koma við mig.“ Þetta hefur verið í gangi síðan ég var ung. Takið utan um börnin ykkar og ræðið við þau. Þetta er svo skelfilegt, hún fær bara ekki séns.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Vilhjálmur segir hagsmuni Íslands í húfi – „Nú er ekki tími fyrir pólitískar skotgrafir eða flokkadrátt“

Vilhjálmur segir hagsmuni Íslands í húfi – „Nú er ekki tími fyrir pólitískar skotgrafir eða flokkadrátt“
Fréttir
Í gær

Ósáttur MBA-nemi fór í stríð við HÍ – „Varstu vísvitandi að ljúga því að mér“

Ósáttur MBA-nemi fór í stríð við HÍ – „Varstu vísvitandi að ljúga því að mér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hönnun nýja landspítalans fellur ekki í kramið hjá Illuga – „Þetta er ekki fallegt“

Hönnun nýja landspítalans fellur ekki í kramið hjá Illuga – „Þetta er ekki fallegt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Minnstu munaði að Einar Rúnar missti af 57 ára afmælisdeginum – Þvingaður út af vegi við Kvísker

Minnstu munaði að Einar Rúnar missti af 57 ára afmælisdeginum – Þvingaður út af vegi við Kvísker