fbpx
Fimmtudagur 27.nóvember 2025
433Sport

Bolton fer á hausinn á morgun nema eitthvað óvænt gerist

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 26. ágúst 2019 11:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bolton Wanderers sem Íslendingar hafa góða tengingu við fer á hausinn á morgun, nema eitthvað óvænt gerist.

Félagið hefur síðustu ár glímt við mikil fjárhagsleg vandræði, vonir stóðu til að félagið yrði selt um helgina.

Það datt upp fyrir og nú hefur verið greint frá því að félagið fari á hausinn á morgun, nema það takist að finna nýjan eiganda.

Bolton var fyrir tíu árum mjög stöðugt félag í ensku úrvalsdeildinni, Guðni Bergsson var lengi fyrirliði liðsins. Þá léku Grétar Rafn Steinsson, Heiðar Helguson, Eiður Smári Guðjohnsen og fleiri fyrir félagið.

Bolton hefur til 17:00 til að finna eiganda til að kaupa félagið og rétta skútuna við, annars verður sjoppunni lokað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Innbrotsþjófar sem rændu fyrir 200 milljónir borga 167 krónur í sekt fyrir það

Innbrotsþjófar sem rændu fyrir 200 milljónir borga 167 krónur í sekt fyrir það
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fyrrum starfsmaður City segir að stóri dómurinn falli á næstunni

Fyrrum starfsmaður City segir að stóri dómurinn falli á næstunni