Laugardagurinn gekk vel á útihátíðinni Flúðir um versló og hátíðargestir létu sólarleysi ekki á sig fá. Veður var einnig bæði þurrt og gott. Í tilkynningu frá hátíðarhöldudum segir meðal annars:
„Upp úr þrjú hófst mikil skrúðganga þegar mannhafið færði sig um set og kom sér fyrir í Torfdalnum til að fylgjast með Vélfangs Traktoratorfærunni. Áhorfendur voru fleiri þúsund og er það ekki óvanalegt fyrir þennan vinsælasta viðburð verslunarmannahelgarinnar. Eftir harða keppni stóð Óskar Björnsson uppi sem sigurvegari og ók hann Massey Ferguson dráttarvél.“
Kvölddagskráin hófst á tónleikumm með Eyþóri Inga í félagsheimilinu en hljómsveitin Made in sveitin sá um stórhátíðardansleikinn. „Það var samdóma álit viðbragsaðila að dansleikurinn hafi farið með eindæmum vel fram og ekki kom til neinna stympinga. Allir skemmtu sér hið besta,“ segir í tilkynningunni.
Um dagskrána í dag, sunnudag, segir:
„Í dag sunnudag verður hvergi slegið slöku við því helgin stendur sem hæst. Um hádegi opnar kaffihús og upplýsingamiðstöð ,,Flúðir um versló” hægt er að gæða sér á gómsætum kökum, rjúkandi kaffi eða kakó og jafnvel gera það ,,írskt” ef vilji er til. Sprell leiktæki opna á sama tíma. Leikhópurinn Lotta sýnir litlu hafmeyjuna í Lækjargarði klukkan 13:00 og svo fer fram Furðubáta keppnin klukkan þrjú við brúna yfir litlu Laxá.
Brenna og brekkusöngur fer fram í Torfdalnum klukkan níu og svo kemur, að öðrum ólöstuðum, besta ballaband landsins Stuðlabandið fram á dansleik sem hefur verið kallaður ,,heimamannaballið” þá flykkjast heimamenn á ball til að hitta gesti hátíðarinnar. Allir koma saman og gleðjast yfir frídegi verslunarmanna.“
Meðfylgjandi myndir eru frá hátíðinni.